Skinfaxi - 01.03.2022, Qupperneq 25
S K I N FA X I 25
1. spurning: Við höfum ekki
tekið umræðuna um breytingu á
íþróttahéruðum en á sínum tíma
börðumst við fyrir því að hafa tvö
íþróttahéruð á Reykjanesinu, ÍRB
og ÍS.
2. spurning: Ég held að þetta
snúist um fjármagnið og hversu
öflugt það gæti orðið ef skaginn
yrði eitt íþróttahérað.
3. spurning: Eins og ég segi í
svari við fyrstu spurningunni höf-
um við ekki tekið umræðuna og
ÍRB hefur ekki verið mjög virkt,
þar sem það er enginn launaður
starfsmaður. En það horfir von-
andi til betri vegar. Persónulega
sé ég ekki Reykjanesið sem eitt
íþróttahérað. Hef spurt sjálfan
mig að því hvort við þurfum yfir
höfuð að vera með íþróttahéruð
en ekki komist að niðurstöðu.
Ef breytingar verða gerðar þarf
Einar Haraldsson, formaður og
framkvæmdastjóri Keflavíkur,
íþrótta- og ungmennafélags.
það að vera skýrt hvert hlutverk
íþróttahéraða er og því þarf þá
að fylgja fjármagn ef þetta á
að virka. Alvöru skrifstofa með
launaða starfsmenn.
Hér eru félögin innan ÍBH:
• Fimleikafélag Hafnarfjarðar (FH)
• Knattspyrnufélagið Haukar (Haukar)
• Siglingaklúbburinn Þytur
• Íþróttafélagið Fjörður
• Sundfélag Hafnarfjarðar
• Fimleikafélagið Björk
• Skotíþróttafélag Hafnarfjarðar
• Kvartmíluklúbburinn
• Golfklúbburinn Keilir
• Golfklúbburinn Setberg
• Hestamannafélagið Sörli
• Hnefaleikafélag Hafnarfjarðar
1. spurning: Fyrst og fremst vilj-
um við benda á að erfitt er að
mynda sér skoðun á meðan út-
færslan er ekki á hreinu. Það skort-
ir upplýsingar um hvaða útfærslu
er verið að skoða og hvernig stað-
an er á umræðum um skiptingu
lottósins. Stjórn HSV er sammála
um að fækka þurfi samböndum
og efla þau. Landfræðilega erum
við ekki með tillögu að útfærslu
eða hvaða leið sé best. Með sam-
einingu sveitarfélaga í Ísafjarðar-
bæ sameinuðust fjöldi ungmen-
nafélaga og héraðssambanda í
HSV, það tókst og ætti að vera
hægt að sameina enn frekar.
2. spurning: Þessi ákvörðun á
ekki að snúast um pólitík eða pen-
inga, mikilvægt er að horft sé til
þess að búa til öflug sambönd til
að styrkja íþróttahreyfinguna.
3. spurning: Við sjáum fyrir okk-
Dagný Finnbjörnsdóttir, fram-
kvæmdastjóri HSV.
(Svörin eru frá stjórn HSV).
ur að íþróttafélögin í kringum okk-
ur myndu hafa hag að því að vera
undir einu héraðssambandi með
starfsmann sem sér um t.d. fræðslu-
mál, styrkjamál, úthlutanir, sam-
skipti við UMFÍ og ÍSÍ o.s.frv.
Undir lok nóvember samþykkti stjórn UMFÍ umsókn
Íþróttabandalags Hafnarfjarðar að UMFÍ. Þetta er stórt
skref í sögu íþróttahreyfingarinnar á Íslandi. Sambands-
aðilum UMFÍ fjölgaði um einn og er þá allt höfuðborg-
arsvæðið innan hreyfingarinnar.
„Ég fagna þessu skrefi og trúi því og treysti að samvinna
muni aukast innan íþróttahreyfingarinnar,“ segir Hrafn-
kell Marinósson, formaður ÍBH, í kjölfar tímamótanna. Undir það tók
Elísabet Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri ÍBH. Þau leiddu umsóknarferlið
saman fyrir hönd íþróttabandalagsins.
Yfirleitt eru nýir sambandsaðilar samþykktir á þingum UMFÍ. Á 52.
sambandsþingi UMFÍ, sem haldið var á Húsavík árið 2021, var stjórn
veitt heimild til þess að samþykkja aðild íþróttahéraða á milli þinga.
ÍBH varð þar með fjórða íþróttabandalagið til að bætast við í UMFÍ.
Þrjú bandalög eru þar fyrir; Íþróttabandalag Reykjavíkur (ÍBR), Íþrótta-
bandalag Akureyrar (ÍBA) og Íþróttabandalag Akraness (ÍA).
Öll fengu þau aðild að UMFÍ á sambandsþingi UMFÍ haustið 2019.
Hafnfirðingar bætast við UMFÍ
Tímamótaskref í sögu ungmennafélagshreyfingarinnar.
Félögin innan ÍBH
Innan ÍBH eru skráðar um
15.000 iðkanir (sumir ein-
staklingar æfa fleiri en eina
grein) hjá 25 aðildarfélög-
um í Hafnarfirði undir merkj-
um ÍBH. Innan ÍBH eru félög
eins og FH, Haukar, Sund-
félag Hafnarfjarðar, Kvart-
míluklúbburinn, Badminton-
félag Hafnarfjarðar, golf-
klúbbar, hestamannafélög
og mörg fleiri.
• Badmintonfélag Hafnarfjarðar
• Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar
• Akstursíþróttafélag Hafnarfjarðar
• Hjólreiðafélagið Bjartur
• Íþróttafélag Hafnarfjarðar
• Brettafélag Hafnarfjarðar
• Bogfimifélagið Hrói Höttur
• Bílakúbbur Hafnarfjarðar
• Blakfélag Hafnarfjarðar
• Tennisfélag Hafnarfjarðar
• Siglingafélagið Hafliði
• Sambo 80
Hrafnkell Marinósson, formaður ÍBH.