Skinfaxi - 01.03.2022, Page 26
26 S K I N FA X I
„Þetta er hæsta upphæð sem við
höfum greitt út til aðildarfélaga
UMFÍ og nýtist til að bæta hreyf-
inguna fyrir alla,“ segir Sigurður
Óskar Jónsson, formaður Sjóða-
og fræðslunefndar, sem jafnframt
er stjórn Fræðslu- og verkefna-
sjóðs UMFÍ. Sjóðurinn úthlutaði á
dögunum 14,2 milljónum króna
til 105 verkefna. Þetta er hæsta
upphæð sem úthlutað hefur verið
úr sjóðnum í einu. Alls bárust sjóðs-
stjórn 129 umsóknir að þessu sinni.
Sjóðsstjórn úthlutar styrkjum úr
Fræðslu- og verkefnasjóði tvisvar
á ári og var þetta síðari úthlutun
ársins. Fyrri úthlutun ársins var í vor
og hljóðaði upp á 10,8 milljónir króna. Sjóðurinn hefur því styrkt verk-
efni á vegum félaga innan UMFÍ fyrir um 25 milljónir króna á þessu ári.
Markmið Fræðslu- og verkefnasjóðs er að styrkja félags- og íþrótta-
starf ungmennafélagshreyfingarinnar í samræmi við stefnu UMFÍ, m.a.
með því að auka menntun og þekkingu félaga innan hreyfingarinnar á
íþróttagreinum, þjálfun í félagsmálum og félagsstarfi. Rétt til umsóknar
úr sjóðnum eiga sambandsaðilar UMFÍ, aðildarfélög sem eru virk í
starfi og deildir innan þeirra. Einnig eiga stjórn og nefndir UMFÍ rétt á
að sækja um styrk úr sjóðunum.
Fræðslusjóður var stofnaður árið 1943 til minningar um Aðalstein
Sigmundsson, sem var formaður UMFÍ árin 1930 til 1938. Verkefna-
sjóðurinn var stofnaður árið 1987.
Á 47. sambandsþingi UMFÍ sem haldið var á Akureyri árið 2011 var
samþykkt að sameina sjóðina og ber hann heiti þeirra beggja.
Tekjustofn sjóðsins er 7% af lottótekjum UMFÍ.
Gera gott starf enn betra
Sigurður Óskar Jónsson, formað-
ur Sjóða- og fræðslunefndar.
Tvisvar á ári veitir UMFÍ fjölmörgum aðildarfélögum styrki til ýmissa góðra verkefna. Þar á meðal
er varðveisla gamalla muna, námskeið fyrir hina og þessa og kynning á nýjum íþróttagreinum.
Áherslur í úthlutunum
Í samræmi við reglugerð sjóðsins leggur sjóðsstjórn áherslu á að veita
styrki til verkefna sem:
• eru til þess fallin að auka þekkingu og fagmennsku innan félags
með fræðslu, fyrirlestrum og/eða námskeiðum
• stuðla að aukinni útbreiðslu og/eða stofnun félags eða deilda
• stuðla að aukinni þekkingu og varðveislu á menningu og sögu félags
• eru til þess fallin að auka menntun þjálfara og dómara
• eru í samræmi við auglýst áhersluatriði sjóðsins hverju sinni
- Fyrir úthlutanir 2022 var lögð áhersla á átaksverkefni til þess að
snúa við brottfalli barna og ungmenna í skipulögðu íþróttastarfi
vegna áhrifa heimsfaraldurs Covid-19.
- Átaksverkefni til aukinnar þátttöku á Unglingalandsmóti 2022.
Í 6. grein reglugerðar sjóðsins segir: Sjóðurinn styrkir ekki tækja-,
áhalda- ogbúnaðarkaup, fundakostnað (þ.m.t. veitingar) og almenn-
an rekstur félaga.
Á árinu gaf sjóðsstjórn út nýjar vinnureglur og matskvarða sjóðsins.
Umsókn þarf að hljóta að lágmarki 50 stig til þess að vera metin styrk-
hæf. Upplýsingar um nýju reglurnar má finna á heimasíðu UMFÍ.
Úthlutanir úr Fræðslu- og verkefnasjóði
Ár Verkefni Upphæð
2022 163 25.009.210
2021 217 19.590.825
2020 272 20.238.788
2019 206 16.832.000
2018 199 16.214.250
2017 152 14.699.500
2016 134 14.149.000
Takk fyrir stuðninginn
P 187
C15 M100 Y100 K4
R172 G37 B43
Hlíðasmári 6 Kópavogi 510 7900
FJARÐABYGGÐ