Skinfaxi - 01.03.2022, Side 37
S K I N FA X I 37
Um 170 manns æfa íshokkí og um 300 listskauta hjá Skautafélagi Reykjavíkur.
„Við höfum verið í uppbyggingarfasa og síð-
ustu fimm ár hefur fjölgað stöðugt hjá okkur,“
segir Bjarni Helgason, formaður barna- og
unglingaráðs Skautafélags Reykjavíkur. Fyrir
um fimm árum var aðsóknin í lágmarki hjá
félaginu. Ný stjórn sem tók þá við með Bjarna
í forsvari setti sér það markmið að fjölga iðk-
endum og hefur henni tekist ætlunarverk sitt.
„Við notum samfélagsmiðla, Facebook,
Instagram og YouTube, til að auglýsa starf-
Opnir tímar trekkja fólk að
Stjórn Skautafélags Reykjavíkur sneri blaðinu við eftir slaka aðsókn.
Tvöfölduðu iðkendafjöldann á fimm árum.
semina og á síðustu fimm árum höfum við tvö-
faldað iðkendafjölda skautafélagsins. Núna
eru um 160–170 manns sem æfa íshokkí og
um 300 sem æfa listskauta. Ég held að það
sé um helmingur af öllum skautaiðkendum á
Íslandi um þessar mundir. Listskautadeildin
okkar er held ég um tvöfalt stærri en hinar
tvær á landinu,“ segir Bjarni.
Skautafélagið er með aðstöðu í Skautahöll-
inni í Laugardal. En eins og á fleiri stöðum er
ístími af skorum skammti. „Ístímarnir eru ekki
nógu margir, það er í raun mjög takmarkaður
tími í boði. Báðar deildirnar okkar eru í vand-
ræðum að fá ístíma. Það er komið á dagskrá
að fá annað svell og búið að teikna upp svell
á grasflötinni á milli Grasagarðsins og Skauta-
hallarinnar. Við vonum innilega að það verði
að veruleika, því það er farið að hamla okkur
að hafa ekki fleiri ístíma,“ segir Bjarni.
Opnir prufutímar gefast vel
Skautafélagið býður stundum upp á sérstaka
opna tíma þar sem fólki er boðið að koma og
prófa íþróttina. Það hefur gefist vel.
„Eftir að við byrjuðum í þessu uppvinnslu-
ferli var eitt af aðalatriðunum að fjölga iðkend-
um. Þegar við erum með opna prufutíma koma
alltaf einhverjir nýir. Við vorum með opinn
tíma í stelpnahokkíi fyrir stuttu og það heppn-
aðist mjög vel. Þegar ég byrjaði voru held ég
um þrjár stelpur að æfa íshokkí. Núna eru þær
um 30–40. Lykilatriðið er að láta stúlkur sjá um
æfingarnar einu sinni í viku. Þessir tímar virka
líka vel til að halda betur utan um hópinn. En
svo verða líka til vinkvennahópar og það er
mikilvægt. Þetta hefur því reynst mjög vel,“
segir Bjarni og bætir við að öllum börnum og
ungmennum sé í raun velkomið að koma og
prófa skautaíþróttina áður en þau skuldbindi
sig til æfinga hjá félaginu. „Við lánum allan
búnað, svo að það er ekkert mál að prófa og
sjá hvort þú fílar þetta eða ekki,“ segir hann.