Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.03.2022, Side 40

Skinfaxi - 01.03.2022, Side 40
40 S K I N FA X I Þ að er eðlilegt að spyrja spurninga eins og þessarar endrum og eins. Af hverju erum við annars að þessu, að mæta á völlinn og á æfingar í misgóðu æfingahús- næði, í kulda og trekki, vinna í sjoppunni á leikjum barna okkar og vina og leggja eitt og annað á okkur fyrir félagið sem við styðjum? Af því að það er gaman og það gerir okkur gott. Þátttaka í skipulögðu starfi íþróttafélaga gerir gagn. Sem foreldrar, stuðningsfólk, sjálfboða- liðar liða og félaga erum við bakhjarlar alls þess starfs sem íþróttafélögin og annað skipu- lagt félags- og tómstundastarf byggir á. Á sama tíma og við styðjum félagið hjálpum við öðrum og bætum samfélagið. Við hjá UMFÍ og íþróttahreyfingin fylgjumst grannt með stöðu mála og líðan iðkenda í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Við notum til þess gögn úr samstarfsverkefni UMFÍ og ÍSÍ, niðurstöður úr spurningalistum sem lagðir eru fyrir nemendur í 8. til 10. bekk grunn- skóla. Niðurstöðurnar eru birtar í Ánægjuvog- inni, sem sýnir okkur árangurinn af skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi. Niðurstöðurnar sýna svart á hvítu kosti skipulagðs starfs. Iðkendum líður betur Síðasta könnun Ánægjuvogarinnar var gerð vorið 2022. Niðurstöðurnar sýna að börnum og ungmennum líkar vel við íþróttafélög sín og þjálfara. Nemendum sem svöruðu spurn- ingunum um allt land finnst mörgum gaman á æfingum, sem er ánægjulegt. En íþróttir hafa góð áhrif og aldrei er of oft hamrað á því að nemendur sem stunda íþróttir í skipulögðu starfi eru almennt sáttari við lífið og tilveruna en þeir sem standa utan við íþróttastarfið. Munurinn er sláandi. Iðkendum hjá íþróttafélögum líður almennt vel. Þeir sofa betur en aðrir og telja heilsu sína betri en þeirra sem ekki stunda reglulegar íþróttir í skipulögðu starfi. Jákvæðir iðkendur sem hafa heilbrigt líferni að leiðarljósi eru ólík- legri en aðrir til að leiðast út í óæskilega hegð- un. Hinir byrja að drekka fyrr og sofa verr og meiri líkur eru á að þeir leiðist út í áhættu- hegðun. Niðurstöðurnar staðfesta því öðru fremur forvarnargildi og mikilvægi skipulags íþrótta- og æskulýðsstarfs á Íslandi. Það sem skiptir ekki síður máli er að sjálfs- mynd einstaklinga í skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi er sterkari en annarra. Iðkend- ur standa einfaldlega traustum fótum og geta ákveðið að halda ekki lengra – jafnvel stöðvað aðra – þegar óæskileg leið stendur til boða. Þetta er lykilatriði til framtíðar og samfélaginu til góða. Upplýsingarnar sem hér hafa verið nefndar ríma við niðurstöður Embættis landlæknis og birtast í Lýðheilsuvísum embættisins. Gerir íþróttafélagið mitt gagn? Fáum alla með Eins og áður segir sýna niðurstöður Ánægju- vogarinnar glöggt forvarnargildi skipulags íþróttastarfs. Í samræmi við það þarf að ná betur til barna, ungmenna og annars fólks sem af einhverjum ástæðum tekur ekki þátt í skipulögðu starfi eða upplifir sig ekki sem hluta af menginu. Gögnin úr Ánægjuvoginni sýna að hlutfallslega fleiri strákar en stelpur taka þátt í íþróttastarfi. Stúlkur og kynsegin gera það síður. Börn og ungmenni af erlendu Dæmi um niðurstöður úr Ánægjuvoginni • Um helmingur barna sem koma frá heimilum þar sem eingöngu íslenska er töluð stundar æfingar með íþróttafélagi. • 42% stúlkna stunda íþróttir með íþróttafélagi fjórum sinnum í viku eða oftar. • 19% stúlkna stunda íþróttir með íþróttafélagi 1–3 sinnum í viku. • 46% drengja stunduðu íþróttir með félagi fjórum sinnum í viku eða oftar. • 18% drengja stunduðu íþróttir með félagi 1–3 sinnum í viku. • Einungis 16% nemenda sem skilgreina sig kynsegin/annað stunda íþróttir með íþróttafélagi fjórum sinnum í viku eða oftar og 18% 1–3 sinnum í viku. Allar niðurstöður er hægt að skoða undir hlekknum: https://www.umfi.is/verkfaerakista/anaegjuvogin/ Skýrsla Ánægjuvogarinnar var þetta árið gefin út eftir skiptingu landsins í heil- brigðisumdæmi í íþróttahéraða. Með þeim hætti er mögulegt að skoða niðurstöðurnar í samanburði við lýðheilsuvísa Embættis landlæknis. Til viðbótar fær hvert íþrótta- og ungmennafélag með fleiri en 15 iðkendur úr þeim árgöngum sem svöruðu spurningun- um sérstaka félagsskýrslu með lykiltölum úr Ánægjuvoginni frá iðkendum viðkomandi félags. Landshlutaskýrslurnar voru sendar forsvarsfólki héraðssambanda og íþrótta- bandalaga ásamt skýrslum íþróttafélaga. Stelpa Strákur 0 20 40 60 80 100 % 40 36 66 18 18 18 42 46 16 Kynsegin/ annað Hve oft stundar þú íþróttir (æfir eða keppir) með íþróttafélagi? Greint eftir kynferði árið 2022. bergi brotin og fólk með fatlanir sömuleiðis. Ýmsir falla af ýmsum ástæðum utan hópsins. Við þurfum því að snerta við öðrum og hjálp- ast að til að finna leiðir til að opna dyr íþrótta- félaga sem flestum. Það getur kallað á að fólk þurfi að hugsa hlutina upp á nýtt til að upp- fylla mismunandi þarfir iðkenda svo að sem flestir geti tekið þátt og verið með í starfinu. Gerum þess vegna gott starf betra og styðj- um íþróttafélagið okkar.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.