Skinfaxi - 01.03.2022, Qupperneq 40
40 S K I N FA X I
Þ
að er eðlilegt að spyrja spurninga
eins og þessarar endrum og eins.
Af hverju erum við annars að
þessu, að mæta á völlinn og á
æfingar í misgóðu æfingahús-
næði, í kulda og trekki, vinna í sjoppunni á
leikjum barna okkar og vina og leggja eitt og
annað á okkur fyrir félagið sem við styðjum?
Af því að það er gaman og það gerir okkur gott.
Þátttaka í skipulögðu starfi íþróttafélaga gerir
gagn. Sem foreldrar, stuðningsfólk, sjálfboða-
liðar liða og félaga erum við bakhjarlar alls
þess starfs sem íþróttafélögin og annað skipu-
lagt félags- og tómstundastarf byggir á. Á
sama tíma og við styðjum félagið hjálpum við
öðrum og bætum samfélagið.
Við hjá UMFÍ og íþróttahreyfingin fylgjumst
grannt með stöðu mála og líðan iðkenda í
skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Við
notum til þess gögn úr samstarfsverkefni UMFÍ
og ÍSÍ, niðurstöður úr spurningalistum sem
lagðir eru fyrir nemendur í 8. til 10. bekk grunn-
skóla. Niðurstöðurnar eru birtar í Ánægjuvog-
inni, sem sýnir okkur árangurinn af skipulögðu
íþrótta- og æskulýðsstarfi.
Niðurstöðurnar sýna svart á hvítu kosti
skipulagðs starfs.
Iðkendum líður betur
Síðasta könnun Ánægjuvogarinnar var gerð
vorið 2022. Niðurstöðurnar sýna að börnum
og ungmennum líkar vel við íþróttafélög sín
og þjálfara. Nemendum sem svöruðu spurn-
ingunum um allt land finnst mörgum gaman á
æfingum, sem er ánægjulegt. En íþróttir hafa
góð áhrif og aldrei er of oft hamrað á því að
nemendur sem stunda íþróttir í skipulögðu
starfi eru almennt sáttari við lífið og tilveruna
en þeir sem standa utan við íþróttastarfið.
Munurinn er sláandi.
Iðkendum hjá íþróttafélögum líður almennt
vel. Þeir sofa betur en aðrir og telja heilsu sína
betri en þeirra sem ekki stunda reglulegar
íþróttir í skipulögðu starfi. Jákvæðir iðkendur
sem hafa heilbrigt líferni að leiðarljósi eru ólík-
legri en aðrir til að leiðast út í óæskilega hegð-
un. Hinir byrja að drekka fyrr og sofa verr og
meiri líkur eru á að þeir leiðist út í áhættu-
hegðun.
Niðurstöðurnar staðfesta því öðru fremur
forvarnargildi og mikilvægi skipulags íþrótta-
og æskulýðsstarfs á Íslandi.
Það sem skiptir ekki síður máli er að sjálfs-
mynd einstaklinga í skipulögðu íþrótta- og
æskulýðsstarfi er sterkari en annarra. Iðkend-
ur standa einfaldlega traustum fótum og geta
ákveðið að halda ekki lengra – jafnvel stöðvað
aðra – þegar óæskileg leið stendur til boða.
Þetta er lykilatriði til framtíðar og samfélaginu
til góða.
Upplýsingarnar sem hér hafa verið nefndar
ríma við niðurstöður Embættis landlæknis og
birtast í Lýðheilsuvísum embættisins.
Gerir íþróttafélagið mitt gagn?
Fáum alla með
Eins og áður segir sýna niðurstöður Ánægju-
vogarinnar glöggt forvarnargildi skipulags
íþróttastarfs. Í samræmi við það þarf að ná
betur til barna, ungmenna og annars fólks
sem af einhverjum ástæðum tekur ekki þátt
í skipulögðu starfi eða upplifir sig ekki sem
hluta af menginu. Gögnin úr Ánægjuvoginni
sýna að hlutfallslega fleiri strákar en stelpur
taka þátt í íþróttastarfi. Stúlkur og kynsegin
gera það síður. Börn og ungmenni af erlendu
Dæmi um niðurstöður úr Ánægjuvoginni
• Um helmingur barna sem koma frá heimilum þar sem eingöngu íslenska er töluð
stundar æfingar með íþróttafélagi.
• 42% stúlkna stunda íþróttir með íþróttafélagi fjórum sinnum í viku eða oftar.
• 19% stúlkna stunda íþróttir með íþróttafélagi 1–3 sinnum í viku.
• 46% drengja stunduðu íþróttir með félagi fjórum sinnum í viku eða oftar.
• 18% drengja stunduðu íþróttir með félagi 1–3 sinnum í viku.
• Einungis 16% nemenda sem skilgreina sig kynsegin/annað stunda íþróttir með
íþróttafélagi fjórum sinnum í viku eða oftar og 18% 1–3 sinnum í viku.
Allar niðurstöður er hægt að skoða undir hlekknum:
https://www.umfi.is/verkfaerakista/anaegjuvogin/
Skýrsla Ánægjuvogarinnar var þetta árið gefin út eftir skiptingu landsins í heil-
brigðisumdæmi í íþróttahéraða. Með þeim hætti er mögulegt að skoða niðurstöðurnar
í samanburði við lýðheilsuvísa Embættis landlæknis. Til viðbótar fær hvert íþrótta- og
ungmennafélag með fleiri en 15 iðkendur úr þeim árgöngum sem svöruðu spurningun-
um sérstaka félagsskýrslu með lykiltölum úr Ánægjuvoginni frá iðkendum viðkomandi
félags. Landshlutaskýrslurnar voru sendar forsvarsfólki héraðssambanda og íþrótta-
bandalaga ásamt skýrslum íþróttafélaga.
Stelpa
Strákur
0 20 40 60 80 100 %
40
36
66
18
18
18
42
46
16
Kynsegin/
annað
Hve oft stundar þú íþróttir (æfir eða keppir)
með íþróttafélagi? Greint eftir kynferði árið 2022.
bergi brotin og fólk með fatlanir sömuleiðis.
Ýmsir falla af ýmsum ástæðum utan hópsins.
Við þurfum því að snerta við öðrum og hjálp-
ast að til að finna leiðir til að opna dyr íþrótta-
félaga sem flestum. Það getur kallað á að fólk
þurfi að hugsa hlutina upp á nýtt til að upp-
fylla mismunandi þarfir iðkenda svo að sem
flestir geti tekið þátt og verið með í starfinu.
Gerum þess vegna gott starf betra og styðj-
um íþróttafélagið okkar.