Skinfaxi - 01.03.2022, Síða 42
42 S K I N FA X I
Sterkari eftir sameiningu
Hestamannafélagið Jökull varð til í júlí árið 2021 með sameiningu
félaganna Loga í Biskupstungum, Smára í Hreppum og Trausta í
Laugardal og telur í dag um 660 félagsmenn.
Mikill kraftur var settur í undirbúning sameiningar þar sem tveir úr
hverju félagi skoðuðu kosti sameiningar árið áður. Nefndin leitaði fyrir-
mynda víða. Undir lok árs 2020 lagði hún gögnin fyrir forsvarsfólk
félaganna. Nýtt félag var svo stofnað á Geysi í Haukadal 1. júlí 2021.
Nýtt félag fékk vinnuheitið Hestamannafélag uppsveitanna. Farið var
í að semja lög og sækja um inngöngu í íþróttasambönd. Þá var efnt
til hugmyndasamkeppni um nafn á sameinað félag og var valið úr sjö
nöfnum.
Oddrún segir mikinn kraft hafa leyst úr læðingi við sameiningu
félaganna.
„Það hefur verið mikið í gangi hjá okkur Jökulsfólki í haust. Ýmis nám-
skeið, sýnikennsla og fyrirlestur. Einnig er hestamannafélagið í sam-
starfi við grunnskólana í uppsveitum og býður upp á val í hesta-
mennsku í fyrir krakka á unglingastigi í knapamerkjunum, sem eru
stigaskipt nám í reiðmennsku. Samheldnin er mikil og allir tilbúnir að
vinna að góðu starfi fyrir félagið okkar. Sveitarfélögin hér í uppsveit-
um standa líka þétt við bakið á okkur og það er ómetanlegt,“ segir
hún að lokum.
HVAÐ ER AÐ
FRÉTTA?
„Hestur er hópdýr sem er alltaf
að leita að leiðtoga í sínu stóði.
Á námskeiðinu er markmiðið að
knapinn og hesturinn nái að vinna
saman og að maðurinn verði leið-
togi sem hesturinn lítur upp til og
þá nást betri tengsl,“ segir
Oddrún Ýr Sigurðardóttir,
framkvæmdastjóri Hestamanna-
félagins Jökuls.
Hugmyndin að námskeiðinu
kom frá félagsmanni Jökuls um að
félagið héldi sirkusnámskeið á
Flúðum eina helgi í nóvember.
Reiðkennarinn Ragnheiður Þor-
valdsdóttir kenndi á námskeiðinu.
Hún hefur haldið álíka námskeið í
Mosfellsbæ á vegum Hestamannafélagsins Harðar í áraraðir og á fleiri
stöðum. Námskeið Ragnheiðar hafa vakið mikla eftirtekt.
Þær Oddrún og Ragnheiður hafa þekkst um árabil. Það var því lítið
mál að hafa samband við Ragnheiði og fá hana til að kíkja í sveitina og
kenna knöpum og hestum kúnstir.
Tíu félagsmenn í Jökli sóttu námskeiðið, fólk á öllum aldri allt frá
12–13 ára og upp að sextugu. Þátttakendur voru ánægðir.
„Ég er sjálf reiðkennari og hef farið á þetta námskeið hjá Ragnheiði.
Þetta er einstakt og mjög skemmtilegt námskeið, ég veit ekki til að
annar kennari sé með sams konar námskeið og hún. Á námskeiðinu
fór enginn á bak á hestunum heldur var unnið með hestinn í hendi
allan tímann og inni í reiðhöll. Ekki var nauðsynlegt að hafa hestana
járnaða, þannig að fólk gat þess vegna sótt hesta sína út í stóð og
komið á námskeiðið. Eini búnaðurinn sem þurfti var snúrumúll, langur
mjúkur kaðaltaumur og smella sem er oft notuð sem umbun í stað
nammis,“ segir Oddrún og bætir við að námskeiðið hafi verið mjög
skemmtilegt því þarna nálgist þátttakendur hestamennskuna á annan
hátt. Farið var meðal annars yfir leikina sjö eftir Pat Parelli, sem eru
undirstaða góðra samskipta við hestinn, smelluþjálfun, brelluþjálfun
og umhverfisþjálfun.
Eftir námskeiðið ræddi Oddrún við flesta sem sóttu námskeiðið til
að kanna hug þeirra.
„Allir voru ánægðir. En auðvitað var farið frekar hratt yfir allt saman.
Einn þátttakandi sagði að hana langaði til að fara aftur á námskeiðið til
að læra meira,“ segir Oddrún.
Leiðtoganámskeið
í reiðhöllinni
Mikil kraftur er í Hestamannafélaginu Jökli eftir sameiningu þriggja
félaga. Félagið stóð fyrir forvitnilegu námskeiði á dögunum.
Oddrún Ýr Sigurðardóttir, fram-
kvæmdastjóri Hestamannafélag
ins Jökuls.
Takk fyrir stuðninginn
Frá námskeiðinu sem haldið var í reiðhöllinni.