Muninn - 01.04.2021, Qupperneq 44
ANDREA ÁRMANNSDÓTTIR 3.A
SHE RUNS skírteinið
Skírteini þetta fékk ég þegar mér bauðst, á fyrsta árinu mínu í MA, að taka þátt í
alþjóðlegri ráðstefnu sem nefnist SHE RUNS. Ráðstefnan var í París og komu
þar saman um 2500 stúlkur sem höfðu allar það markmið að efla íþróttastarf
kvenna. Ég er ævinlega þakklát fyrir þetta tækifæri.
Flugmiðarnir mínir
Sumir myndu eflaust telja skrítið að geyma eða safna flugmiðum en ég er á
öðru máli. Ég geymi alla flugmiða sem ég hef fengið og er alltaf gaman að fletta
í gegnum þá og rifja upp minningar. Mæli eindregið með að byrja að safna!
Miðinn á mína fyrstu árshátíð í MA
Þetta hér er inngöngumiðinn á mína fyrstu árshátíð í MA. Ég var í 10.bekk og
var þetta því ein af mínum fyrstu upplifunum í MA og klárlega ein sú besta. Ég
á svo margar góðar minningar frá þessu kvöldi og gleðst alltaf þegar ég rekst á
þennan miða sem ég mun alltaf geyma.
STEFÁN PÁLL ÁRDAL 3.F
Kvittanir
Viltu kvittun?? Ef svar þitt er ekki já þá ert þú að missa af miklu í lífinu. Það
er gaman að geyma þær til að skoða í hvaða vitleysu þú ert búinn að vera
eyða peningum í. Svo líturðu líka alltaf út fyrir að vera loka dílum. Stórum
dílum.
Gítarnögl
Gellur elska gaura sem kunna að spila á gítar. Það var allavega sagt mér, þess
vegna byrjaði ég að æfa á gítar. Hefur ekki sannað sig hingað til en kann þó á
gítar núna.
Hálsmen
Mig langaði lengi vel i hálsmen og sá þetta fallega hálsmen á flóamarkaði úti í
sveit. Sennilega hefur einhver lítil stelpa átt það áður því það er frekar lítið en
passar samt þokkalega vel á mig.
Buff
Er alltaf með buff í vasanum, bara svona ef mér yrði kalt eða þyrfti
nauðsynlega að buffa einhvern. Hér er buff, um buff, frá buffi til buffs.
ÞORBJÖRG ÞÓRODDSDÓTTIR 1.L
Ég fann Appelsínubarnið í Kjarnaskógi fyrir nokkrum sumrum, í
völundarhúsinu. Líklega missti einhver hann, en mér finnst skemmtilegt að
hugsa að þetta sé draugabrúða. Setur aðeins krydd í tilveruna að eiga
eitthvað svoleiðis.
Árið 1947 fékk níu ára afi minn, Bjarni Hannesson, bókina Kattaklúbburinn í
jólagjöf. Pabbi minn fékk hana svo, og síðan endar hún hjá mér. Bókin fjallar
um skautandi köttinn Jenný Linsky og kattaklúbbinn í hverfinu sem hún vill
komast í.
Guðfinnur trúður var keyptur á Borðeyri fyrir nokkrum árum. Hann á
bræður og hljómsveitarmeðlimi á nokkrum stöðum á landinu, sem búa hjá
vinum mínum. Guðfinnur elskar sólsetur og göngutúra á ströndinni.
Þegar ég var tólf las ég að það ætti að stela eða fá gefins fyrstu tarot spjöldin
sín, og ákvað að ég ætti augljóslega að stela mínum. Endaði samt á því að
kaupa þau, mér leið of illa yfir því.
UPPÁHALDS HLUTIR
MA-INGA
42