Mosfellingur - 12.01.2023, Blaðsíða 22
- Mosfellingurinn Jórunn Edda Hafsteinsdóttir22
Myndir: Ruth Örnólfsdóttir, Anna Kristín Scheving og úr einkasafni.
Jórunn Edda var ung að árum er hún
hóf störf á sambýli en það var þar
sem hún áttaði sig á við hvað hún
vildi starfa í framtíðinni. Hún hóf nám í
hjúkrunarfræði og eftir útskrift hóf hún
störf á Landspítalanum þar sem hún
starfaði í tólf ár. Hún segir árin þar hafa
verið góð en starfið hafi oft á tíðum verið
krefjandi.
Í dag stýrir hún Heilsugæslu Mos-
fellsumdæmis sem flutti í nýtt húsnæði
að Sunnukrika árið 2021. Heilsuvernd
er stór hluti af starfseminni svo það er
sannarlega í mörg horn að líta.
Jórunn Edda er fædd í Vestmannaeyjum
23. mars 1975. Foreldrar hennar eru Guð-
finna S. Kristjánsdóttir fv. bankastarfsmað-
ur og Hafsteinn Stefánsson húsasmiður.
Jórunn á tvo bræður, Kristján Helga f.
1978 og Ívar Frey f. 1985.
Tel mig forréttindastelpu
„Ég fæddist í Vestmannaeyjum en bjó
þar aldrei en móðir mín er ættuð þaðan.
Mér þykir mjög vænt um Eyjarnar og þar á
ég stóra fjölskyldu.
Ég ólst upp í sveit, í Túni í Flóa, rétt utan
við Selfoss. Ég átti góða æsku og tel mig
forréttindastelpu að hafa alist þarna upp
og hafa enn aðgang að sveitinni. Foreldrar
mínir voru með blandað bú í félagsbúi við
afa minn og ömmu sem bjuggu á sama bæ.
Það var gæfa að fá að alast upp í nálægð
þeirra því þau eru fyrirmyndir mínar í svo
mörgu.
Það hafði mótandi áhrif að taka þátt
í sveitastörfunum og að valta og snúa á
traktornum þegar aldur leyfði. Ég hafði
gaman af því að keyra hann, maður sat
með vasadiskóið og söng hástöfum lög með
Greifunum.“
Hafði góð áhrif að koma fram
„Ófærð og rafmagnsleysi er eitthvað sem
maður þekkti vel, þá var kveikt á olíulömp-
um og kertum. Ein jólin var svo brjálað
veður að við þurftum að fara yfir
til ömmu og afa á traktornum
með jólapakkana bundna aftan
á, það var rafmagnslaust þau
jólin. Föðurbræður mínir léku
alltaf jólasveina og þeir komu með pakkana
í stórum poka alla leið inn í stofu, þetta er
ljúf æskuminning,“ segir Jórunn og brosir.
„Ég gekk í barnaskólann í Þingborg en
þetta var lítill sveitaskóli með um 30 börn,
þar var skipt í yngri og eldri deildir. Skóla-
stjórinn var mikill leikhúsáhugamaður og
það voru sett upp leikrit fyrir jólin sem allir
tóku þátt í. Þetta hafði án efa góð áhrif á
það að koma fram og taka þátt.“
Skelltu sér á sveitaböllin
Jórunn gekk í gagnfræðaskólann á Sel-
fossi og segir að það hafi verið mikil breyt-
ing að koma í stóran skóla. „Eftir útskrift
úr gagnfræðaskólanum þá fór ég í Fjöl-
brautaskóla Suðurlands, það voru góð ár
og þar kynntist ég mínum bestu vinkonum.
Við vorum duglegar að ferðast
og skemmta okkur á sveita-
böllunum í Njálsbúð, Hvoli og
Aratungu.
Á sumrin tók ég þátt í störfunum í
sveitinni en sumarið eftir fermingu fór ég
að vinna í humri í Vestmannaeyjum. Þá
dvaldi ég hjá ömmu minni Helgu og það
var skemmtilegt sumar. Eftir það starfaði ég
hjá Kaupfélagi Árnesinga og við hin ýmsu
verslunarstörf eftir það.“
Fór til Bandaríkjanna
„Eftir stúdentinn 1995 fór ég í eitt ár
sem aupair til Bandaríkjanna. Ég var í New
Jersey fylki og var mjög heppin með fjöl-
skyldu. Tilgangurinn með þessari dvöl var
að sjá heiminn og læra betur ensku því ég
ætlaði í frekara nám.
Þetta var mjög þroskandi för, ég náði að
ferðast til Flórída, Mexíkó og Kanada. Þetta
var áður en internetið kom til sögunnar
þannig að ég skrifaði um
350 bréf til vina og ættingja
þetta árið og fékk annað eins
til baka,“ segir Jórunn og
brosir. „Eftir að ég kom heim
þá starfaði ég einn vetur á
bensínstöð en eftir það hef
ég starfað við umönnun og
hjúkrun.“
Ekkert gerist af sjálfu sér
Jórunn Edda er gift Óskari
Sigvaldasyni frá Borgarnesi,
hann rekur ásamt öðrum fyr-
irtækið Borgarverk. Þau eiga
þrjá drengi, Sigvalda Örn f.
2002, Hafstein Ara f. 2007 og
Halldór Orra f. 2011.
„Við fjölskyldan höfum
gaman af því að ferðast, bæði
um landið og erlendis og við förum
mikið í sveitina, eins höfum við verið í
jeppaferðum og útivist.
Drengirnir okkar hafa allir æft íþróttir
með Aftureldingu, um tíma voru þeir allir
í blaki og ég líka. Ég gaf kost á mér í barna-
og unglingaráð blakdeildarinnar. Þátttaka
í starfi Aftureldingar er gefandi og reyndist
mér góð leið til að kynnast skemmtilegu og
drífandi fólki. Við sem eigum börn í íþrótt-
um megum ekki gleyma því að ekkert gerist
af sjálfu sér og við verðum öll að taka þátt
í einhvern tíma til þess að starf félagsins
gangi upp, þá uppskera allir.“
Þetta var krefjandi á köflum
„Ég starfaði eitt sumar á sambýli á Sel-
fossi og þar áttaði ég mig á að áhugi minn
lægi í hjúkrun. Ég hóf nám í hjúkrunarfræði
við Háskóla Íslands og útskrifaðist 2001. Ég
hóf störf á Landspítalanum og starfaði þar
í tólf ár, lengst af á almennri skurðdeild
og þvagfæraskurðdeild. Þetta voru góð ár
þótt starfið hafi verið krefjandi á köflum. Á
þessum tíma tók ég einnig diplómanám í
hjúkrun aðgerðasjúklinga við HÍ.
Haustið 2013 ákvað ég að breyta til,
komin með þrjú börn og orðið flóknara
að vera í vaktavinnu. Ég sótti um starf hjá
Heilsugæslu Mosfellsumdæmis og hér
hefur mér líkað mjög vel. Ég byrjaði sem
skólahjúkrunarfræðingur en hef verið mest
í ung- og smábarnavernd og á hjúkrunar-
móttökunni.“
Skjólstæðingum fer fjölgandi
„Árið 2016 fór ég í klínískt diplómanám
í heilsugæsluhjúkrun við Háskólann á Ak-
ureyri, hélt áfram námi og kláraði meist-
arapróf 2020 í heilbrigðisvísindum með
áherslu á klíníska heilsugæslu í héraði.
Vorið 2021 bauðst mér að taka við sem
fagstjóri hjúkrunar og svæðisstjóri heilsu-
gæslunnar. Hér starfar gott starfsfólk, tæp-
lega 30 manns, 7 starfsstéttir í mismunandi
stöðugildum. Saman vinnum við að því að
sinna og leysa úr erindum sem berast með
hag skjólstæðinga okkar að leiðarljósi, en
skjólstæðingum stöðvarinnar hefur farið
fjölgandi.
Heilsuvernd er stór hluti af starfi
heilsugæslunnar, mæðravernd, ung- og
smábarnavernd, skólaheilsugæsla og
heilsueflandi móttaka. Við erum sífellt að
þróa þjónustuna til að sinna okkar fólki
sem best. Í haust komum við af stað nýrri
heilsueflandi móttöku aldraðra sem er
góð og þörf viðbót. Við erum einnig með
öfluga hjúkrunarmóttöku og dagvakt sem
sinnir bráðveikum og slösuðum, ásamt
hefðbundinni læknamóttöku. Á morgnana
bjóðum við upp á stutta samdægurs lækna-
tíma og einnig í lok dags.
Álag hefur verið mikið, sér í lagi síðustu
tvö árin, það er krefjandi verkefni að sinna
vel þeim erindum sem berast en hlúa um
leið vel að starfsfólkinu. Árið 2021 fluttum
við í nýja húsnæðið okkar í Sunnukrika
sem hefur breytt gríðarlega miklu í starfi
stöðvarinnar.
Ég er mjög stolt af því að tilheyra þeim
góða hópi sem starfar á heilsugæslunni,“
segir Jórunn Edda og brosir er við kveðj-
umst.Óskar, Hafsteinn Ari, Sigvaldi Örn, Halldór Orri og Jórunn Edda.
MOSFELLINGURINN
Eftir Ruth Örnólfsdóttur
ruth@mosfellingur.is
Erum sífellt að þróa þjónustuna
Jórunn Edda Hafsteinsdóttir fagstjóri hjúkrunar og svæðisstjóri Heilsugæslu Mosfellsumdæmis
Saman vinnum við að því að
sinna og leysa úr erindum
sem berast með hag skjólstæð-
inga okkar að leiðarljósi.
HIN HLIÐIN
Hvaða litur lýsir þér best? Blár.
Besta heilsuráðið? Útivera.
Hvað drífur þig áfram? Samskipti
og fólk, gera gagn.
Strengir þú áramótaheit? Nei.
Bókin á náttborðinu? Tregasteinn,
Arnaldur Indriðason.
Hver kom þér síðast á óvart og
hvernig? Óvæntur þakklætisvottur
frá Aftureldingu.
Bestu kaup sem þú hefur gert?
Gönguskórnir mínir.
Hvað er það skemmtilegasta sem
þú hefur gert? Ferðast með
fjölskyldunni og toppa fjallstinda.
ung að árum bólusett í höllinni
á brúðkaupsdaginn 2014