Mosfellingur - 12.01.2023, Qupperneq 32

Mosfellingur - 12.01.2023, Qupperneq 32
 - Steinaeyjan32 Kvartanir og leiðindi sendist á steinaeyjan@gmail.com Birkir og Eyþór Wöhler gleðilegt nýtt ár mosfellingar nær og fjær Það er óhætt að segja það að margt hafi gerst á árinu í Mosfellsbænum fagra, en við ætlum að fara yfir allt það helsta … Við höfum fengið frá mörgum traustum heimild- um að mörgum Mosfellingum hafi vaxið ásmegin þegar þeir komust að því að viðgerðirnar sem voru að valda kvíða og erfiði í allt sumar voru til þess að byggja tilgangslausasta veg allra tíma hjá Nettó. Skipulagsmál í kássu hjá Mosfellsbæ og vonandi getum við horft fram á betri vegi með nýjan bæjarstjóra í brúnni. Halli bæjó lét af sem bæjarstjóri Mos- fellsbæjar eftir 16 mögur ár í starf. Kveðjurnar voru kaldar … ÍSKALDAR en það var púað á hann þegar hann labbaði inn í veislu árshátíðar Mosfellsbæjar í seinasta sinn. Sigmar Vilhjálmsson gekk í samband með skvísu frá Danmörku á þessu ári og þau slitu sambandi sínu á þessu ári sömuleiðis, stutt og laggott samband en við fengum Sigmar á tal og spurðum hvað kom upp á þar sem margir voru búnir að binda vonir við að þetta samband væri komið til að vera, og sagði hann þá: Bitches come and go but my money will always be my first love. Listapúkinn fór mikinn á þessu ári og hélt listasýn- ingu sem sló í gegn í Listasal Mosfellsbæjar. Vel heppnuð sýning sem fór ekki framhjá einum einasta Mosfellingi. Regína Ásvaldsdóttir tók við embætti bæj- arstjóra fyrr á þessu ári sem vakti mikla kátínu meðal Steinabræðra og allra helstu Mosfellinga. Steinabræður óska henni alls hins besta og megi henni vegna vel í nýju starfi. Karlalið Aftureld- ingar í fótbolta setti stigamet í Lengjudeildinni í ár. Kvennalið Aftureldingar í fótbolta komst upp í deild þeirra bestu, en eitthvað hefur fækkað í stúkunni af karlmönnum eftir að fótboltakonan Jade hætti með liðinu og fór í WWE. Gunnar Jagúar sem sló rækilega í gegn hjá konu sinni í ár með sínum mjúkum mjaðmahreyfing- um í beddanum og „attítjúddinu“ betra er að gefa en þiggja, fékk að lýsa heimsmeistaramótinu í knatt- spyrnu og varð ekkert eðlilega ríkur í leiðinni. Dáðasti sonur Mosfellsbæjar Eyþór Wöhler gekk til liðs við Breiðablik í seinasta mánuði og bindum við miklar vonir við að hann verði næsta stórstjarna Mosfellsbæjar. Það var stunguárás í Mosfellsbæ (2023) en það hafa verið miklar deilur um hvort bláa eða svarta doritoz-ið sé betra Starfsfólk í sundlaug Lágafells byrjaði með nýja og skemmtilega hefð í aprílmánuði, en hefðin virkar þannig að pulsurnar sem ekki náðust að seljast eru settar upp í rassgatið á öllu starfsfólki sundlaugarinnar og þurfa allir að hlaupa ganginn og sá sem er síðastur þarf síðan að borða pulsuna sína. Jógvan Hansen prumpaði rosalega hátt þegar hann fór í kirkju og hélt að enginn heyrði, en Birgir prestur heyrði. Varmárskóli (Kvíslaskóli) var fullur af myglu, það lagaðist þegar Þórhildur skólastjóri hætti störfum. SteinaBræður þakka fyrir árið liðna og hlökkum að eyða næstu árum í bænum okkar fagra.

x

Mosfellingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.