Muninn

Volume

Muninn - 01.04.2023, Page 35

Muninn - 01.04.2023, Page 35
Us> En hvað nú? Inspector Scholae og Jón Már skólameistari neita tilvist félagsins og segja þeir það tilbúning, ásamt þess, leggja þeir stuld skólabjöllunnar í efa! Var henni stolið? Ef svo er hvar leynast sönnunargögnin? Aðrir trúa skólann vinna hörðum höndum að því að leyna sannleikanum frá nemendum, hefur hann jafnvel gengið svo langt að láta slípa bjölluna á ný. En viti menn, myndir eru fundnar af bjöllunni, fyrir slípun hennar. Er það satt, getur það verið? Skýrt sést í hana grafið. Hvers vegna eru tilraunir til að þagga niður í orðrómum um tilvist félagsins, þvílíkt margar, endalausar? Og snúum okkur nú að stærstu spurningunni sem reikar í loftinu... hvers vegna 7? 7 er heilög tala. Hvíldardagurinn er sjöundi dagurinn í vikunni og táknar talan fullkomleika og nýtt upphaf. Vert er að taka það fram að Jón Már er einnig sjöundi skólameistari Menntaskólans, og getur það því verið að félagið sé að lýsa yfir stuðningi við Jón Má. En nú, ástkæri nemandi, er komið að lokum pistils þess sem þú hefur lesið. Til hamingju, nú veist þú allt sem vita þarf um Verndara Hefðanna. Og hver veit, ætli félagið lifi enn meðal okkar, án okkar vitundar? Ef svo er, hvað ætli þau geri næst? Efinn mikill ríkir, en verið óhrædd um framhaldið, betta sem gud hefur skeupxð er mjr fayur\

x

Muninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.