Muninn - 01.04.2023, Page 52
13 ára einstaklingar, oftar en ekki strákar sem koma MARGIR saman í hóp. Þessir
einstaklingar taka yfir gymið á milli 14-16 þar sem þeir eru búnir svo snemma í
skólanum. Þeir taka svo sannarlega sinn tíma í hverju tæki fyrir sig en þeir fylgjast rólegir
með á meðan einn gerir í einu og taka gott spjall á meðan.
GEIiF WíH
Óa
Hafa ekki metnað í að búa til sitt eigið plan en finnst gott að svitna og hreyfa sig þannig
fara bara í skipulagða heita tíma. Halda að Hot butt geri eitthvað fyrir rassinn sinn og að
heiti salurinn láti mann brenna fleiri kaloríum.
MMlUöTW)
Outfit: Wife beater, jogging buxur og inniskór.
Mataræði: Skyr, kjúlli og hrísgrjón, koffín og sterar.
Þessi týpa má þó eiga það að hún er oftast mjög dugleg, með mataræðið á hreinu og gott
prógramm þrátt fyrir nokkrar bólur á bakinu.
Lang oftast eldri kynslóðin. Fara bara á skíðavélina og hlaupabrettið, taka kannski smá
maga eftir á. Go to outfit er kvarthlaupabuxur, víður hlýrabolur og asics skór. Hinn
póllinn á þessari týpu eru stelpur sem eru nýbyrjaðar og þora ekkert annað en í
stigavélina og á hlaupabrettið.
Halda að þau eigi heiminn og séu betri en allir aðrir. Fólk á það líka til að vera smeykt við
worldfitarana, spurning hvort það sé af því þau eru í svo góðu formi eða því þau líta niður
á þig. Metta nuls hlýrabolur og svartar buxur er go to outfitið hjá stelpunum og þær eru
matching flest alla daga.
(Wí^) rA
Snerta ekki stöng fyrir sitt litla líf, handlóðin eru þeirra bestu vinir. Legday, hvað er það?
Mæta í fótboltatreyju, horfa á sig í speglinum, taka nokkur bicep curls og kalla það gott.
BOMAÐMR
í9l!MB3@Q
Hip thrust, kickbacks í stigavélinni, bulgarian split squat og hip abductor vélin eru einu
hreyfingarnar sem þekkjast á þessum bæ. Eyða hálfri æfingunni inni á baði að taka myndir
fyrir instastory. Þessi týpa klæðist yfirleitt þröngum stuttbuxum, topp og Metta peysu yfir.
Þekkja ekkert annað en þunga stöng og SBD beltið sitt. Halda að þeir eigi rekkana, hætta
sér ekki upp stigann í Skólastíg því þeir eru svo hræddir um að missa spotið sitt.