Muninn - 01.04.2023, Blaðsíða 74
a er
(íkf
gþví
Hvað gerir góða kennslustund?
Eins og við öll vitum þá er
félagslífið einn helsti
áherslupunktur MA og þ'
einkennist góð kennslustund af
því að þú megir hafa samskipti
við bekkjarfélaga þína. Svo skiptir
góður kennari auðvitað miklu
Hvað gerir góðan kennara?
Sá sem leggur sig allan fram við
að kenna viðfangsefnin á þann
hátt sem skilar sér best til
nemenda. Það er frábært þegar
hann nær að teygja efnið umfram
námsbókina og tengja við daglegt
líf.
Ætti menntaskólinn að vera 3 eða
4 ár?
4 ár!!! Ég held að lang flestir
nemendur og kennarar séu á
sama máli. Sú ákvörðun að hafa
hann bara 3 ár hefur áhrif t.d á
gæði námsins og námsálag og svo
auðvitað félagslífið svo eitthvað sé
nefnt.
Ef þú gætir fengið hvaða
manneskju sem er til að kenna
einn tíma hver yrði fyrir valinu?
Aristóteles - heimspeki
Hvaða áfangi ætti að vera
skylduáfangi fyrir alla?
Fjármálalæsi fyrir allar brautir
Hvað gerir góða kennslustund?
Góður bekkjarandi finnst mér
vera lykilatriði. Þegar kennari og
nemendur ná vel saman er líka
stór plús.
Hvað gerir góðan kennara?
Kennari sem raunverulega vill að
maður skilji efnið og leggur sig
fram við það. Kennari sem er
léttur og skemmtilegur er stór
Ætti menntaskólinn að vera 3 eða
.?
4 arr
Alltaf fjögur ár. Mér finnst ég vera
nýbyrjuð hér og korter í að ég
klári. Ég vil dreifa þessu á fjögur á
svo ég gæti notið betur og náð
andanum smá.
Ef þú gætir breytt einhverju í
skólanum sem myndi bæta námið
fyrir nemendur, hvað væri það?
Nú erum við í 2. bekk á
Raungreina- og tæknibraut í smá
tilraunaverkefni. Við erum með
vinnustundir í töflu þannig þá
getum við ákveðið sjálf hvernig við
nýtum tímann okkar. Engin
formleg kennsla. Mæli með því.
Hvaða áfangi ætti að vera
skylduáfangi fyrir alla?
Fjármálalæsi og hugleiðsla,
Hvað gerir góða kennslustund?
Það sem gerir góða kennslustund
er ef hún fellur niður.
Hvað gerir góðan kennara?
Það sem gerir góðann kennara er
ef að hann heldur athygli manns
og gerir námið fræðandi og
skemmtilegt, eða bara að hann er
mikið heima með veikt barn.
Ef þú gætir breytt einhverju í
skólanum sem myndi bæta
námið fyrir nemendur, hvað væri
það?
Mér finnst að við ættum að hafa
einn til tvo slökunartíma á viku,
þar sem að við förum í fjósið eða í
einhverja stofu og slökum á.
Ef þú gætir fengið hvaða
manneskju sem er til að kenna
einn tíma hver yrði fyrir valinu?
Ég væri til í að fá Bob Ross til að
kenna myndlist.
Hvaða áfangi ætti að vera
skylduáfangi fyrir alla
nemendur?
Skylduáfanginn ætti að vera
"survival" áfangi, þar sem að við
lærum að lifa af í náttúrunni.
Á
,
)
væri eitthvað.