Verzlunartíðindi - 01.12.1967, Side 4
Bókun minnilihita verðlagsnefndar
Á fundi verðlagsnefndar 12. þ. m. voru settar nýjar
verðlagningarreglur, sem gilda skulu þar til í febrúar-
byrjun n. k.
Fulltrúar verzlunar og atvinnurekenda í verðlags-
nefnd mótmæltu harðlega þessari samþykkt, lögðu
fram bókun þá, sem hér fer á eftir og gengu af
fundi.
„Við undirritaðir mótmælum eindregið þeirri af-
greiðslu verðlagsákvarðana, sem hér fer nú fram og
lýsum allri ábyrgð afleiðinga hennar á hendur ríkis-
stjórninni.
Ákvarðanir meiri hluta nefndarinnar eru reistar á
stjórnmálalegum samningum aðila, er standa utan
við verzlunina, og eru án nokkurs tillits til þarfa
liennar. Flefur enda ekki verið gerð tilraun til þess
af hálfu meiri hluta nefndarinnar að leiða nokkrar
líkur að því, að sú þóknun, sem verið er að ákveða
verzluninni, sé nægileg til þess að bera nauðsynleg-
an kostnað vörudreifingar í landinu.
Hefur meiri hluti nefndarinnar því brotið þau fyrir-
mæli, er löggjafinn hefur með 2. mgr. 3. gr. laga nr.
54/1960 lagt fyrir nefndina að starfa eftir, en þar
er kveðið svo á um, að verðlagsákvarðanir allar skuli
miðaðar við þörf vel rekinna fyrirtækja.
Við teljum, að fyrir liggi óhrekjanlegar upplýsingar
um, að vel skipulögð verzlunarfyrirtæki komist ekki
af með lægri álagningu en okkar tillaga segir til
um, en hún er þó eingöngu miðuð við bráðabirgða-
lausn til þess að leysa óvissu og ástand, er krefst
tafarlausrar úrlausnar. Á þetta jafnt við um félags-
rekstur sem einkarekstur. Upplýsingar um almenna
verzlunarálagningu í nágrannalöndum okkar, og
reksturkostnað verzlana þar, styðja í öllum atriðum
þessa afstöðu okkar.
Engin tilraun hefur verið gerð til að afsanna þetta,
hvorki af fulltrrium stéttarsamtaka, verðlagsstjóra
né öðrum embættismönnum. Fyrirliggjandi tillaga
meiri hluta nefndarinnar er því í öllum atriðum
órökstudd.
Við viljum sérstaklega vara við þeim afleiðingum,
sem af slíkum ákvörðunum kunna að leiða fyrir alla
neytendur í landinu. Með þeim teljum við að verið
sé fyrst og fremst að vega að hagsmunum neytend-
anna, með því að bregða fæti fvrir rekstur þeirra
fyrirtækja, er mesta þjónustu hafa veitt neytendum,
en opna gáttir fyrir hvers konar spákaupmennsku,
fjölgun fyrirtækja með lélegri þjónustu og hvers
konar hokurverzlun. Slíkar ákvarðanir eru og til
þess fallnar að draga úr möguleikum til hagstæðustu
vörukaupa og eru enda beinlínis hvatning um sam-
drátt í vöruinnkaupum, er ekki getur leitt til annars
en óhagstæðara verðs eða vöruskorts.
Við viljum því ítreka andstöðu okkar gegn ákvörð-
unum þessum, sem órökstuddum, ómaklegum og í
engu samræmi við ákvæði verðlagslaganna.“
Kaupmenn, kaupíélög!
Jólavindlarnir í ár koma frá Danmörku, Hollandi,
U. S. A., Sviss og Jamaica.
☆
AFENGIS- OG TÓBAKSVERZLUN RÍKISINS
Skrifstofur: Borgartúni 7, sími: 2 42 80.
64
VERZLUNARTÍÐINDI