Verzlunartíðindi - 01.12.1967, Síða 13
Frost
Monsunen
vélar og tæki fyrir kjcit- og kjör-
verzlanir, svo sem kjötsagir, áleggs-
hníi'a, pökkunarvélar, kerrur, körf-
ur o. fl. Ennfremur sýndu þeir inn-
réttingar og hillur fyrir hvers kon-
ar verzlanir. Á vegum D. K. I. var
með sýningunni sérfræðilegur ráðu-
nautur, sem veitti ókeypis leiðbein-
iíngar um ‘innrétingar og fyrir-
komulag verzlana. Sýnishorn
D. K. I. voru smekkleg og fjöl-
breytt.
S0REN MYGIND A/S
S0ren Mygind A/S sýndi nr.a. hina
frægu ,,Reynolon“ PVC plastfilmu.
,,Reynolon“ plastfilman er frá-
brugðin venjulegu plasti að því
leyti að hún „andar“ sem kallað
er og er þar af leiðandi mjög hent-
ug til pökkunar á hvers konar mat-
vörum, svo sem nýjum ávöxtum,
grænmeti, osti, kjöti, brauði o.fl.
Reynolon plastfilman tekur einnig
venjulegu plasti frarn hvað teygj-
anleik og alla áferð snertir. Með
PVC filmunni eru notaðir sérstakir
bakkar af ýmsum stærðum undir
vörurnar og voru þeir einnig til
sýnis í skipinu.
SPEEDRITE
SPEEDRITE-auglýsingateikn i-
áhöldin hafa farið sigurför um
heiminn. Um borð í skipinu var
sérfræðingur í auglýsingateikningu
og leiðbeindi hann mönnum í
notkun teikniáhaldanna. For-
stjórar og fulltrúar allra fyrirtækj-
anna komu fljúgandi til landsins
sama dag og „Frost-Monsunen“
kom og voru þeir allir mættir um
borð og veittu aðstoð og upplýs-
ingar. Aðgangur að sýningunni var
ókeypis. Þessi fyrsta fljótandi vöru-
sýning heppnaðist mjög vel og á
Hervald Eiríkisson miklar þakkir
skyldar fyrir framtak sitt.
Hafsteinn. SigurÖsson framkvœmdastjóri og Sigurgeir
Asbjörnsson tollþjónn.
Að neðan: Hervald útskýrir sýninguna.
Að neðan: Sigurður Magnússon, Ingólfur Ólafsson,
Guðmundur Ingimundarson og Jón Bergs.
VERZLUNARTÍÐINDI