Verzlunartíðindi - 01.12.1967, Page 17
II.
— Hvaða vörur heíur íyrirtækið á boðstólum.
— Vörumarkaðurinn h.t. mun hafa á boðstólum all-
an venjulegan varning til heimilishalds, svo sem
hreinlætisvöru og matvöru hvers konar, þó ekki
kjöt nema niðursoðið. Einkum mun verða lögð
áherzla á að geta boðið sem fjölbreyttast úrval af
innlendri framleiðslu, og verður haft náið samstarf
við framleiðendur með það fyrir augum. En annars
verður kappkostað að hafa jafnan til sölu valdar, er-
lendar vörur, sem viðurkenndar eru fyrir gæði.
Rétt er að geta þess hér, að allar þær heimilisvélar
frá Electrolux í Svíþjóð, sem fluttar eru til landsins,
verða til sölu með öðrum varningi hjá Vörumarkað-
inum. Þær verða seldar með 10% afslætti gegn stað-
greiðslu, en heimflutningur er ekki innifalinn.
III.
— Er líklegt að verzlun í þessu formi nái til sín
hinni svokölluðu framhjásölu heildsölufyrirtækja?
— Segja má, að Vörumarkaðurinn h.f. fari hér út á
þá braut að bjóða almenningi eins konar sambland
viðskipta í heildsölu og smásölu, og mun þessu við-
skiptafyrirkomulagi verða vel tekið af þeim, sem hafa
hug á að spara með því að kaupa sem mest magn í
senn af hverri vöru. Það er kunnara en frá þurfi að
segja, hve fast einstaklingar knýja á hjá heildsölum
um kaup á varningi handa heimilum sínum.
Vörumarkaðurinn sættir sig við lægri álagningu af
því að ætlunin er að ná hagnaði með sem mestri
umsetningu miðað við pakkningu á þeim vörum, sem
hafðar verða til sölu.
IV.
— Skipulag fyrirtækisins?
— Húsakynni fyrirtækisins eru öll á neðstu hæð bygg-
ingarinnar og eru skipulögð þannig: Að austan
verðu, eða hægra megin við anddyri, er 60—70 fer-
metra salur, sem í rauninni er eins konar sýningar-
skáli, þar sem viðskiptamenn geta skoðað sýnishorn
af öllum þeim varningi, sem á boðstólum er hverju
sinni. Vörusýnishorn þessi eru öll merkt, bæði með
hlaupandi númerum og verði, og eru gefnar upp-
lýsingar um verð heillar einingar (t. d. kassa með
vissum fjölda smápakka), hálfrar einingar og einstaks
pakka. Álagning er mismunandi, minnst á heilli ein-
VERZLUNARTÍÐINDI
77