Verzlunartíðindi - 01.02.1990, Qupperneq 17
*
y§y
Kópavogskaupmenn í jólaönnum
Jóhann í Borgarbúðinni
KÓPAVOGSKAUPMAÐUR
í MEIRA EN 30 ÁR
— áður komu húsmæður með barna-
vagna, - nú koma þær akandi á bílum
JÓHANN - jólamánuðurinn er erfiður og gefur ekki eins mikið
í aðra hönd og margir vilja álíta.
Það var árið 1957, sem Jó-
hann Kristjánsson hóf kaup-
mennsku í litlu húsi við Urðar-
braut í Kópavogi. Hann og
kona hans, Hulda Klein, voru
öllum hnútum kunnug í versl-
unarrekstri. Jóhann hafði starf-
að um 13 ára skeið í einni af
verslunum tengdaföður síns,
Jóhannesar Klein, sem rak um
skeið þrjár kjötverslanir í
Reykjavík.
„Mig langaði að reka verslun
á eigin reikning, keypti húsið á
uppboði, það hafði verið versl-
un þarna fyrir“, sagði Jóhann
þegar við hittum hann að máli á
dögunum. Jóhann settist að
nánast í faðmi matvörurisa
þeirra daga, Kron, sem var á
næsta horni með verslun.
Margt hefur breyst til hins
betra frá því Jóhann hóf rekstur
Borgarbúðarinnar. Gamla hús-
ið sem var aðeins 80 fermetrar
og þar af nýtt sem íbúð að
hálfu, er nú horfið, en vandað
og gott verslunarhús, ca. 400
fermetrar að stærð er risið á
lóðinni. Götur Kópavogs þóttu
illar yfirferðar árið 1957 og lengi
þar á eftir, og um allan bæ var
verið að byggja. En þetta hefur
líka breyst. Bæjarbragurinn er
allur annar og betri. Jóhann
byrjaði aleinn, símalaus fyrstu
10 mánuðina, en Hulda sinnti
fjórum börnum þeirra hjóna en
gat hjálpað til fyrir helgar.
„Ég held ég geti sagt að ég
hafi gert það gott með mikilli
vinnu“, segir Jóhann. Þó var
samkeppnin mikil og matvöru-
verslanir í vesturbæ Kópavogs
voru einar átta talsins. Sam-
keppnin fór þó vel fram að sögn
Jóhanns. Hann segir að síðan
þetta gerðist hafi miklar breyt-
ingar orðið á verslun. M.a. það
að í gamla daga komu hús-
mæðurnar að versla á öllum
tímum dags, og komu þá með
barnavagna, í dag koma þær á
bílum, og aðallega seinni part
dags eftir að hafa lokið vinnu.
Með tímanum skapaðist því
þörf fyrir meiri bílastæði við
búðirnar, en fyrir 30 árum
höfðu þau ekki mikið að segja.
Það hafði líka mikið að segja á
þessum árum að fjarri því allar
fjölskyldur höfðu ísskápa og því
urðu húsmæður að kaupa inn
oftar en þær gera í dag.
Gamla verslunarhúsið var
aðeins 40 fermetrar. Jóhann
átti eftir að tífalda verslunar-
rými Borgarbúðarinnar í tveim
áföngum. Árið 1969 var byggð-
ur fyrri áfanginn, en 10 árum
síðar bættist sá síðari við. í
gömlu búðinni voru viðskiptin
þó lífleg og starfsfólk oft 4-5
auk sendisveins.
Jóhann segir að sér lítist illa
á ýmislegt í þeirri þróun sem nú
á sér stað í matvöruverslun. Til
dæmis nefndi hann þann ara-
grúa af tilboðum sem dengt er
yfir kaupmenn af framleiðend-
um og heildsölum. Þegar búið
er að verðmerkja vöruna skell-
ur á tilboð og aftur þarf að fara
að verðmerkja. Þessi tilboð
yrðu til þess að auka vinnuna
og koma rugli á bókhaldið. Af-
greiðslutíminn væri annað rugl-
ið, sérstaklega í Kópavogi.
Sjálfur hefði hann reynt þetta
með því að hafa opið á sunnu-
dögum frá 9-13. „Ég hætti
þessu, enda er það ekki þess
virði, ég held að flestir kaup-
menn komist að raun um það
fljótlega. Mínir viðskiptavinir
vita hvenær opið er og eru
löngu búnir að stilla sig inn á
það“, sagði Jóhann.
En hvernig var jólaverslun-
in?
„Ég vil nú helst horfa sem
mest framhjá desembermán-
uði, vil allt eins að nóvember og
janúar séu góðir mánuðir, sem
og allir hinir mánuðirnir. Mér
finnstjólamánuðurinn alltaf erf-
iður, en að hann gefi ekki í aðra
hönd eins og margir vilja nú
halda, enda hlýtur því að vera
takmörk sett hvað fólk borðar,
jafnvel á stórhátíðum".
Jóhann tekur annars daginn
snemma alla daga, - upp klukk-
an 6 til að „skoða Moggann,
síðan í búðina kl. 7 og opnar
kl.8 ásamt einum starfsmanni.
Þá koma strax viðskiptavinir,
auk þess sem vörumóttaka
hefst. Jóhann heldur þeim
gamla sið að loka búðinni frá
12.30 til 14, heldur fast í sam-
komulag sem gert var við VR á
sínum tíma en fæstir halda í
dag. Síðan er opið til 18.30
mánudaga til fimmtudaga, en á
föstudögum til 21, en á laugar-
dögum frá 8 til 13.
í Borgarbúðinni hefur verið
starfrækt stórt happdrættaum-
boð um árabil. Viðskiptavinir
hafa oftar en einu sinni sent
kaupmanninum hlýjar hugsan-
ir, þegar vinningur kom á miða
þeirra, sem þeir höfðu gleymt
að endurnýja. Jóhann og
Hulda höfðu þá séð um að end-
urnýja, og vinningurinn var í
höfn.
ÁSGEIR EIRÍKSSON
KLETTUM, GNÚÞVERJAHREPPI
801 SELFOSSI - SfMI 99-6053
SÖLUMAÐUR
JÓN MAGNÚSSON
BARÓNSTÍG 24 - SÍMI 91-21194
101 REYKJAVfK
17