Verzlunartíðindi - 01.02.1990, Side 20
A
Kopavogskaupmenn i jolaonnum
fjöldi starfsfólks á þönum í búö-
inni og viðskiptavinir biðu af-
greiðslu misþolinmóðir. Hjá
Vedu eru stöðugildin 4-5 yfir ár-
ið, en fyrir jól þarf á viðbótar-
kröftum að halda.
Sigríður sagði að vinnan fyrir
jól væri gífurlega mikil og erfið
og nánast enga hvíld að fá.
Þegar jólabókasölu og skiptum
bóka linnti tæki síðan við sala á
ýmsum skrifstofuvörum sem
tekur kipp um áramótin. Sér
virtist sem janúar og febrúar
væru allgóðir bóksölumánuðir,
en aðrir mánuðir en þessir tveir
og desember daufir. Eftir ára-
mótin kaupir fólk gjarnan bók-
ina sem það óskaði eftir en fékk
ekki í jólagjöf. Bækur væru
annars mest keyptar til gjafa,
en minna um það að fólk keypti
góða bók til að gleðja sjálft sig.
Veda selur auk bóka, talsvert
af leikföngum og ritföngum,
auk þess sem verslunin er með
filmuframköllun fyrir Kodak.
Bóksalar hafa þurft að
kyngja samkeppni frá þeim
sem síst skyldi, bókaútgefend-
um. Sagði Sigríður það rétt að
bóksölum þætti það ósann-
gjarnt að þurfa að keppa við
forlagsverslanir og farandsala,
sem bókaforlögin gera út. Væri
það í raun nauðsynlegt að
bóksalar og útgefendur kæm-
ust að samkomulagi um skipan
málafyrirframtíðina. Samning-
ar þessara aðila væru lausir
um þessar mundir og vonandi
kæmist heilbrigðari skipan á
málin. Eitt af því sem komast
þyrfti í samningana væri
greiðslufrestur, sem tæki mið
af stórauknum viðskiptum með
greiðslukort.
Venjan í dag er sú að bóka-
verslun selur fyrstu 5 eintök
bókar í umboðssölu. Næstu
pöntun þarf yfirleitt að greiða
eftir vikutíma, sem Sigríður
sagði að væri allt of knappur
tími.
„Mér finnst gaman að vinna
við verslun, er vön þessu frá því
í bernsku, því mamma, Guðrún
Sigurðarsdóttir, rak lengi sölut-
urn við Reykjavíkurveginn í
Hafnarfirði, og þar var ég
snemma viðloðandi", sagði
Sigríður. Hinsvegar sagði hún
að gallinn við jólakauptíðina
fyrir konu sem er kaupmaður
væri sá að undirbúningur jóla-
haldsins biði sífellt heima fyrir,
og til að sinna því þyrfti auka-
krafta, sem i yrði að virkja.
Nidursuðuvörur
Þegar vanda skal til veislu
úrvalsframleiðsla
úr 1. flokks hráefni
íslensk /////
Ameríska
Þökkum
samstarfið
á liðnu ári
/^ryEUUM
1 » llSLENSKT!
FÉLAG ÍSLENSKRA IÐNREKENDA
Lakkrísreimar
Stjöruurúllnr
Lakkrísrör
LakkrísruUur
LAKKRÍSGERÐin
■ Dalshrauni 10 - S 53105 - Hafnarfirði ■■