Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.01.1911, Qupperneq 33

Sameiningin - 01.01.1911, Qupperneq 33
349 » á mér viö dyrastafinn, og eg var þræll hans iþa'öan í frá. * Þannig innvann eg mér hana Rakel mína. Og myndi nokkur nokkurn tima hafa boriö aöra eins ást í brjósti og eg?“ Ester laut niör og kyssti hann; þau þögöu bæöi um hríð og hugsuðu um hana, er látin var. ( „Húsbóndi minn drukknaði á sæ úti“—kvað kaupmaðr, er hann tók aftr til máls—, ,,,og var það fyrsta sorgar- raunin, sem eg varð fyrir. Harmr var í húsi hans, en einnig í mínu húsi hér í Antíokíu, þar sem eg þá hafði aðsetr. Og taktu nú eftir því, sem eg segi, Ester! Þá er hinn ágæti höfðingi féll frá, var eg kominn svo hátt upp, að eg var orðinn aðal-ráðsmaðr hans, og allar eig- arnar, sem honum heyrðu til, vorif í umsjón minni og varðveizlu. Getr þú af þessu ráðið, hve heitt hann unni mér og hve eind'regið traust hann bar til mín. Eg brá við og ferðaðist til Jerúsalem til þess að gjöra ekkjunni skil. Hún fól mér sömu ráðsmennsku framvegis. Eg lagði mig allan fram til að leysa hlutverk mitt betr og betr af hendi. Verzlanin gekk vel og fœrðist út með ári hverju. Tíu ár liðu; þá kom fyrir reiðarslagið, sem þú heyrðir hinn unga mann segja frá — slysið, einsog hann nefndi það, sem Gratus landstjóri varð fyrir. Rómverjinn hélt því fram, að þar hefði honum verið sýnt banatilræði. Undir því yfirskini gjörði hann, að fengnu leyfi frá Róma- borg, eigur ekkjunnar og barnanna, sem voru feikna- miklar, allar upptœkar sjálfum sér til notkunar. Og ekki nam hann þar staðar. Til þess að dómnum yrði ekki unnt að breyta kom hann hlutaðeigendum öllum burt. Upp frá þeim voðadegi allt þangað til nú hafa þau börn Húrs og ekkja hans öll verið týnd. Sonrinn, sem eg hafði séð, er hann var barn, var dœmdr í galeiðujþrældóm. Um ekkjuna og dótturina er það ætlan manna; aö þær hafi verið inni byrgðar í einhverri dýflizunni í Júdeu, en þær eru margar; og eftir að einhver, sem til þess hefir verið dœmdr, hefir þar verið lokaðr inni, er einsog væri hann kviksettr, því dýflizan er harðlæst og innsigli sett fyrir dyrnar. Enginn vissi framar um þær, ekki fremr en hefði sjórinn gleypt þær og látið þær að fullu og öllu hverfa. Við gátum ekki fengið um það að vita, hvernig þær létu lífið, og jafnvel ekki um það, að þær í raun og veru væri dána.r.“ Ester hlustaði á sögu föður síns með tárvotum augum. „Þú ert hjartagóð, Ester! einsog móðir þín var; og þess bið eg, að hjarta þitt verði ekki fótum troðið af miskunnarlausum og blindum mönnum, einsog fyrir flest- t» um liggr, sem samskonar hjartalag hafa til að bera. En

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.