Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.01.1911, Blaðsíða 35

Sameiningin - 01.01.1911, Blaðsíða 35
35i ® ‘Styrkleiki og heiör er fatnaðr hennar, og hún hlær að ® komanda degi’ ?“ Endrskin óumrœöilegs kærleika uppljómaöi ásjónu hans, er hann mælti: „Á margan hátt hefir drottinn veriö mér góðr; en þú, Ester! ert kóróna velþóknunar hans.“ Hann lagði hana sér viö brjóst og kyssti hana hvaö eftir annað. „Heyrðu nú“ — sagði hann með skýrari rödd—, „heyrðu nú, hvernig á því stóð, er eg hló í morgun, Hinn ungi maðr var í augum mínum lifandi eftirmynd föður síns í œskufegrð hans. S.terka hvöt fann eg hjá mér til að heilsa honum. Mér fannst, að reynsludagar mínir og þrautir mínar væri á enda. Með naumindum tókst mér að halda mér1 frá því að kveða uppúr með það, sem mér bjó í brjósti. Mig langaði til að rétta honum höndina og segja: ‘Sko! allt þetta er þitt, ög eg em þræll þinn, til þess búinn að skila því, er eg hefi haft til umráða’. Og það myndi eg vissulega hafa gjört, Ester! hefði ekki á því augnabliki þrjár hugsanir hver eftir aðra þotið gegnum sál mína og aftrað mér. Fyrsta hugsanin vár þetta: Eg skal ganga úr skugga um, að hann sé sonr herra míns; sé hann það', þá skal eg að einhverju leyti komast að raun um, hvernig skapferli hans er. Hve margir þeir eru, Ester! af þeim, er fœðzt hafa auðugir, sem svo er ástatt fyrir, að auðrinn í höndum þeirra verðr þeim bölvunar-uppspretta." Hann þagnaði allt í einu, greip höndum fast saman, en hélt svo áfram með háværum málrómi, er titraði af geðshrœring: „Hugsaðu, Ester! um pyndingarnar allar, sem eg varð út að taka, af völdum Rómverjans; og ekki var það Gratus aðeins; hin mis- kunnarlausu vesalmenni, sem gjörðu það, er hann lagði fyrir, fyrst og síðast, voru Rómverjar, og allir jafnt hlógu þeir að mér, er eg veinaði. Hugsaðu um líkama minn brot- inn og bœklaðan,,—um árin ðll, sem liðin eru síðan tekið var til með það eyðingarverk; hugsaðu um hana móður þína, þar sem hún hvílir í gröf sinni svo einmana, niðr brotna á sálinni einsog eg em niðr brotinn líkamlega; hngsaðu um harma þeirra mœðgna, ekkju herra míns og dóttur hans, ef þær eru enn á lífi, og grimmd þá, sem þær hafa orðið að sæta áðr en þær skildu við, ef þær annars eru dánar; hugsaðu um það allt, og svaraðu mér, dóttir! umkringd af elsku drottins: Á ekki eitt hár að falla né neinn blóðdropi að hníga til jarðar glœpum þessum til af- plánunar? Segðu mér ekki einsog prédikarar stundum segja, að hefndin sé drottins. Hefir hann ekki menn fyrir verkfœri sín til að koma vilja sínum fram til þess að

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.