Sameiningin - 01.01.1911, Síða 36
352
9 vinna óvinum hans tjón allt eins og til hin$, að auðsýna
vinum hans kærleik ? Eru hermenn hans ekki enn fleiri
en spámenn hans? Hljóðar ekki lögmál hans svo: Auga
fyrir auga, hönd fyrir hönd, fótr fyrir fót? Öll þessi ár
hefir mig verið að dreyma um hefnd, og um hefnd hefi eg
beðið, og fyrir hefnd hefi eg ráðstafanir gjört, og hið
vaxanda vörumagn mitt hefir orðið til þess að glœða hjá ,
mér þolinmœði með þvi að eg hefi hugsað og heitið því,
að eins víst og guð lifir skal það á sínum tíma verða til
þess að eg kaupi mér hefnd yfir þeim, sem gjört hafa
mér illt. Hinn ungi maðr minntist þess, að hann hefði j
tamið sér vopnaburð, og kvaðst hafa gjört það í sérstökum
tilgangi, sem hann þó ekki frekar skýrði neitt frá; en
meðan hann mælti það, kvað eg tilganginn vera—hefnd;
og svo var það líka, Ester! — þriðja hugsanin, sem hélt
mér kyrrum og ósveigjanlegum meðan hann var að leggja
að mér og kom mér til að fagna eftir að hann var farinn."
Ester lét vel aði hinum uppvisnuðu höndum föður
síns, og einsog andi hennar ásamt með anda hans væri að
flýta sér áfram til hins setta takmarks, mælti hún:
„Hann er farinn. Myndi hann koma aftr ?“
„Mallúk, hinn trúi þjónn, fer með, honum, og mun
koma með hann aftr, þegar eg er til.“
„Og hvenær myndi það verða, faðir minn?“
„Það líðr ekki á löngu. Hann ímyndar sér, að allir
sé dánir, sem vitnað gæti með honum. Einn er sá á 1 fi,
sem áreiðanlega mun við hann kannast, svo framarlega
sem hann er sonr herra mins.“
„Móðir hans?“
„Eg skal, dóttir mín! setja vottinn fram fyrir hann;
en þangað til svo langt er komið skulum við fela drottni
þetta mál. Eg em þreyttr. Kallaðu á hann Amímelek."
Ester kallaði á þjóninn, og þau sneru aftr heimle.ðis
og inní húsið.
„BJARMI“, kristilegt heimilisblað. kemr út í Reykjavík
tvisvar á mánuði. R-'tstjóri Bjarni Jónsson. Kostar hér í álfu
75 ct. árgangrinn. Fæst í bóksölu H. S. Bardals í Winnipeg.
„NÝTT KIRKJUBLAD", hálfsmánaðarrit fyrir kristindóm og
Vristilega menning, 18 arkir á ári, kemr út í Reykjavík undir rit-
stjórn hr. Þórhalls Bjarnarsonar, biskups. Kostar hér í álfu 7«; ct.
Fæst í bókaverzlan hr. H. S. Bardals hér í Winnipeg.
„Sam.“—Addr.: Sameiningin, P.O. Box 2767, Winnipeg, Man.