Heima er bezt - 01.09.2007, Blaðsíða 5
Guðjón Baldvinsson
Hann er léttur á fæti og kvikur í
hreyfingum, þó á efri ár sé kominn. Þeir
sem gera sér ferð i Kolportið á hafnarsvæði
Reykjavíkur, munu fjótlega gera sér grein
fyrir hver maðurinn er, því þar hefur
hann rekið um nokkurra ára skeið stóra
fornbókaverslun á áberandi stað.
Sigurður Matthíasson heitir hann og er
einn af þessum mönnum sem alltaf eru að
og sjá óðara nýjar leiðir þegar ein lokast.
Ýmislegt hefur á daga hans drifið og
hefitr hann lifað og gengið í gegnum miklar
breytingar í skemmtanalífi landans, en þeim
vettvangi helgaði hann lengst af starfskrafta
sína, sem matreiðslumaður og þjónn.
Það var því tilvalið að heilsa upp á
Sigurð og fá hann til að rekja sögu sína
fyrir lesendum Heima er bezt, en segja
má að hann hafi starfað á öllum helstu
veitingastöðum sem vinsœlastir voru á
seinni helmingi síðustu aldar. Hann hefur
þvi mörgu kynnst í gegnum starf sitt, og
kann fráýmsu skemmtilegu að segja.
Viö gefum Siguröi orðið:
Rætt við Sigurð Sævar Matthíasson,
matreiðslumann
Heima er bezt 437