Ný kynslóð - 01.10.1941, Side 5
I. árg. 1. hefti
Október 1941
' I 11MARITI þvl, sem hér kemur fyrir almenningssjónir, er
* fyrst og fremst ætlað að vera málgagn íslenzkrar æsku.
Ungir menn munu gera það úr garði. Pað ber heiti, sem tákn-
ar nýja tlma og nýja menn. Pað á að flytja sem margþætt-
ast efni, sögur eftir erlenda menn og innlenda, ljóð og grein-
ar um ýmis mál. Þvi er ætlað að vera til fróðleiks og
skemmtunar. En öðru fremur mun það þó ílytja. skáldskap
eftir unga hcfunda og ræðai þau mál, sem æskuna. mest varðar.
Einhverjum kann að virðast, að það sé að reisa tímariti
þröngar skorður að ætla þvi það hlutskipti að vera fyi'St og
fremst málgagn unga fólksins I landinu. En sllkt er af ráðn-
um huga gert. Fjölmargar stéttir þjóðfélagsins hafa eignaat
sín, sérstöku málgögn og halda þeim úti af miklum myndar-
skap, margar hverjar. Sé æskan samhuga og samtaka, ætti
henni að verða, auðvelt að eiga sér málgagn, sem bæri h.enni
menningarvitni. Hin eldri kynslóð miyi einnig fús til þess að Ijá
boðskap þeim eyra, sem hún hefur að flytja, sé hann verð-
ur áheyrnar.
Ég hef hafizt handa um útgáfu þessa rits sem ungur ís-
lendingur og leitað stuðnings ýmissa jafnaldra minna og sam-
herja. Ég er svo bjartsýnn, að ég geri mér beztu vonir um,
að þetta rit megi vænta nokkurrar framtiðar. Ég-trúi þvi
af heilum huga, að íslenzk æska og íslenzk þjóð kunni að
meta hverja tilraun, sem gerð er til aö efla viðgang máls
vors, menningar og þjððernis. Mér er það hugðarmál, að unga,
fólkið leggi sinn skerf frair. og gerist virkir þátttakendur
í h.inni andlegu sjálfstæðisbaráttu Islendinga.
Ég leyfi mér að minna íslenzka æsku á, að hún á skyld-
ur við það land, sem hún er bo-rin til að erfa. Hún á einnig