Ný kynslóð - 01.10.1941, Side 7
Okt. ’41, Ný kjuslód
Guðm. K. Eirílcsson:
Ándvökunótt
DÖMKIRKJUKLUKKAN sló tvö þung, drungaleg
högg. Hljómur þeirra barst út í ömurlega haust-
nóttina.----—
Rigningardroparnir féllu með eyðilegu hljciði nið-
ur á steinlagða götuna. Vindurinn þaut — sleit og
feykti gulnuðum og fölnuðum laufblöðunum af trján-
um í görðunum fyrir framan húsin við götuna. Það
minnti á hverfulleikann og dauðann.
ö, þið andvökunætur! ....
Jóhannes kaupmaður stóð þreytulegur á svip úti
við opinn gluggann í skrifstofu sinni og horfði út í
myrka og regnþrungna haustnóttina. Hann var mað-
ur um fimmtugt, lágvaxinn og þrekinn, í góðum hold-
um, frekar stórskorinn og rauðþrútinn í andliti.
Vinir hans, sem skiptust á um að heimsækja hverjir
aðra, og komu til hans á hverju fimmtudagskvóldi,
til þess að spila, voru farnir fyrir meir en klukkustund.
Konan hans andaði milt og sællega í föstum svefni
í hjónarúminu. En hann gekk um gólf í innislopp og
3