Ný kynslóð - 01.10.1941, Síða 16
Ný kynslóð, okt. ’41
Kalman Mikszath:
Klæði konungsins
ÞESS eru jafnvel dæmi, að ósamræmis gæti í frá-
sögnum sagnritaranna.
Þegar þeir færðu sögu Maurusar konungs i
letur, láðist þeim að láta þess getið, hvaða
ríki hann hefði ráðið. Sú vitneskja myndi þó
engan veginn hafa breytt skoðun þinni á sögunni.
Sá trúi, sem trúa vill. Hér birtist sagan, eins og
hún var skrásett.
Maurus konungur var kvöld nokkurt í .önnum við
að ljúka hinum óhugðnæmu embættisstörfum. —
Hann hafði undirritað sjö tugi skjala, sem ráðgjafi
hans hafði lesio honum syngjandi r.öddu. Hans há-
göfgi reyndi að láta fara sem bezt um sig. Hann
hlýddi makráður á þennan óhjákvæmilega lestur lukt-
um augum. — Fjölmargar tilskipanir gat að heyra,
jafnvel dauðadóma. Hans hág.öfgi andvarpaði þungan.
— Loiksins höfum við lokið þessu, mælti ráogjaf-
inn. Hann vafði skjalastranganum saman og stakk
innsigli ríkisins í vestisvasann.
— Bíddu andartak, Narzis, mælti konungurinn.
— Taktu innsiglið fram aftur og innsiglaðu þenn-
an óritaða dauðadóm, svo að ég geti staðfest hann
með undirskrift minni.
— öritaðan dauðadóm, yðar tign! stamaði ráðgjaf-
inn.
— Já, hefur þú einhverjar athugasemdir að gera
við óskir mínar? Þér er það að sjálfsögðu kunnugt,
12