Ný kynslóð - 01.10.1941, Qupperneq 17
Okt. ’41, Ný kjnslóð
að þú ert ráðgjafi minn. Þig má það engu skipta,
hver,s vegna þú innsiglar skjöl með innsigli ríkisins.
— Narzis, Narzis, ég held helzt, að þú gangir í
barndómi.
— Þetta er misskilningur, yðar hátign! Ég er trygg-
lyndasti þjónn konungsins.
Maurus klappaði vingjarnlega á öxl Narzis, tók
hið umrædda skjal og fól það í innra vasa klæða
sinna, sem voru úr gulli.
— Ég ætla að trúa þér fyrir því til hvers ég
hyggst að nota þetta skjal.
— Lofaður sért þú, tignastur allra konunga, mælti
Narzis lágri röddu.
-— Það er ósk mín að vinna ástir mjög íagurrar
konu. Það var hún, sem bað mig þessa lítifræðis.
Auðvitað gat ég ekki neitað henni jafn smávægilegr-
ar bænar.
— En þú ert miskunnsamur konungur!
— Ég er vitur maður, Narzis. Þú ættir að geta
skilið hvernig á þessu stendur. Þannig er mál með
vexti, að þessi fagra kona er gift og hefur ekki tæki-
færi til þess að skilja samvistir við eiginmann sinn.
Nú mun ég gefa henni tækfæri til þess. Narzis, það
er einmitt það, sem hún þráir.
— Það er sælla að kyssa en drepa, mælti Narzis.
— Það er hverju orði sannara, gamli maður. Ég
mun þegar í stað færa henni þetta skjal, því að ást-
mey konungsins er frækorn, sem ber góðan ávöxt.
Ritaðu þetta í gullnu bókina, sem hefur að geyma
spekiorð mín. Ritaðir þú orðin, sem ég lét falla í
gær, þegar við ræddum um hækkun skattanna?
13