Ný kynslóð - 01.10.1941, Side 19
Okt. ’41, Ný kynslóð
— Hér er gullpeningur. Skiptu klæðum við mig og
leyfðu mér að fara inn í garðinn.
Varðmaðurinn hristi höfuðið.
— Það þori ég ekki, mælti hann. — Það mun
kosta mig lífið, þegar konungurinn kemur aftur.
— Þú ert heimskingi, mælti Rogus. — Konungur-
inn getur ekki ráðið þér bana fyrr en hann kem-
ur aftur. Ég mun hins vegar vega þig án tafar, ef
þú þrjózkast við að hlýða. Þú getur því séð, að þér
gefst tækifæri til þess að spara þér tíma og fé að
auki.
Varðmaðurinn sá brátt hag sinn í því að hlíta boði
hans. Rogus laumaðist inn í garðinn og veitti kon-
unginum eftirför.
Liljurnar lutu honum einnig, rósirnar stráðu blöð-
um sínum á braut hans og kvöldblærinn hví*laði:
— Florilla.
Konungurinn lauk upp léynidyrum og gekk út á
strönd Nílar. Þar höfðu mörg yndisfögur skrauthýsi
verið reist. Þar á meðal var hús Roigusar, sem kon-
ungurinn hafði gefið honum sumarið áður að hetju-
launum. Ráðgjafinn hafði við það tækifæri ritað í
hina gullnu bók: — Velþóknun konungsins er sem
ríkuleg uppskera.
Rogus veitti konunginum ávallt eftirför. Djúp þögn
ríkti á strör.d Nílar, þrátt fyrir milt gjálfur vatns-
ins. Bjartur roði kvöldhiminsins litaði það blátt sem
stál. Glitrandi fljótið líktist blaði á tröllslegu sverði.
Þegar konungurinn kom að húsi Rogusar, blés hann
þrisvar sinnum í silfurflautu. Er merki þetta hafði
verið gefið, birtist kona sýn á svölunum. Hún hefði
15