Ný kynslóð - 01.10.1941, Page 21

Ný kynslóð - 01.10.1941, Page 21
Okt. ’41, NS kynslóö sigldi á fölnuðu blómblaði eftir fljótinu, án þess að óttast skipreika. Konungurinn horfði um stund út á hina mislyndu elfi, unz honum datt snjallræði í hug. Hann fékk sér sæti á fljótsbakkanum skamman spöl frá hrís- kjarrinu, þar sem Rogus leyndist, örvita af reiði og hefndarhug. Hann dró gullit stígvél sín Oig gullspora af fótum sér, fór úr purpuraskikkju. sinni, sem var gimsteinum sett, og lagði silfurflautuna, er hann bar við barm sér, á gróðurvöllinn ásamt skrautklæðum sínum. Hinn voldugi drattnari skyggndist umhverfis sig. — Hvergi gat mannveru að líta. Hver ætti að hafa dirfzt að leggja leið sína út á strönd hinnar heil-’ ögu Nílar í forboði konungsins? Spegilskyggndur vatnsflöturinn var hins vegar nægilega blygðunarlaus til þess að spegla hinn tig- inborna einvalda. Maurus kastaði sér glaður í bragði út í fljótið, sem bar hann mjúklega áfram. — Vín- viðurinn á trjánum, sem uxu á bakkanum, mynd- aði ilmandi vegg, og glitrandi smásteinar á fljóts- botninum kitluðu fætur konungsins. Þegar hann hafði baðað sig að vild, og tími var senn kominn til þess að halda á fund Flarillu, sté hann upp úr vatninu og hugðist að klæðast. að nýju. Hann hraðaði sér þangað, sem hann hafði lagt klæði sín af sér. Hann hlaut að hafa farið á mis við runnanri, þar sem hann hafði skilið þau við sig'. Hann lagði því upp í nýja leit. Aftur hafði honum skjátlazt. Hin konungiegu skrautklæði voru hvergi sjáanleg. Skjálf- andi af ótta hljóp hann úr einum stað í annan. 17

x

Ný kynslóð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný kynslóð
https://timarit.is/publication/1866

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.