Ný kynslóð - 01.10.1941, Síða 32
Ný kynslóð, okt. !41
Þó fór betur að þessu sinni en á horfði. Að til-
hSutun Fjölnismanna og annarra samherja þeirra í
sjálfstæðisbaráttu Islands hófst hér voldug þjóðern-
isvakning. Tunga vor og menning var firrt grandi.
Eigi að síður má spá Rasks vera oss minnisstæð. Al-
þýðan á Islandi skjddi aldrei gleyma því, hversu
þessi mikli málfræðingur og Islandsvinur áleit þátt
hennar í verndun móöurmálsins mikils virði. Dæmi
sögunnar frá endurreisnartímabili þjóðarinnar sann-
ar einnig, að spá hans var á fyllstu rökum reist.
Vinnandi stéttir landsins skipuðu sér í sveit þjóðræk-
inna umbótamanna og báru hugsjónir nýrrar aldar
fram til sigurs.
★
Nýir tímar skapa ný viðhorf. Alvarleg hætta virð-
ist steðja að íslenzkri tungu og menningu að nýju.
Þó hafa aðstæður allar breytzt mjög frá því, sem
fyrrum var. Danir hafa vikið héðan á braut með
áhrif sín, en nýir aðilar komið í þeirra stað. Island
nýtur ekki fjarstöðu sinnar lengur. Setulið tveggja
stórvelda hefur tekið sér hér aðsetur. Svo undar-
Iega hefur atvikazt, að hér getur að líta stríðsvélar
og hersveitir í bæjum og byggðum.
Hættan af hernaðaraðgerðum ógnar landi voru.
Enginn veit, hvað komanda framtíð kann að dylja.
En hættan mesta stafar þó eigi af vopnavaldi. Hitt
gæti alvarlegra talizt, ef Islendingar glötuðu menn-
ingareinkennum sínum og manndómi í skiptum við
hina framandi hergesti.
Því ber sízt að leyna, að nú virðist það óneitan-
lega nokkur tízka meðal Islendinga að taka upp nýja
28