Ný kynslóð - 01.10.1941, Qupperneq 34

Ný kynslóð - 01.10.1941, Qupperneq 34
Okt. ’41, Ný kynslóð kenna hana í framhaldsskólunum einum. — Því til sönnunar liggja hliðstæð dæmi sögunnar til grund- vallar. * fslenzka þjóðin lifir nú menningarlega örlagatíma. Hún hlýtur öll að verða að sameinast um að styrkja * hag tungu sinnar. Skáldin og menntamennirnir hafa mikillar skyldu að gæta. Skólar, blöð og ýmsar menn- ingarstofnanir mega ekki heldur liggja á liði sínu. En þjóðin öll verður jafnframt að láta mál þetta örugglega til sín taka. fslenzkan er farmföst og sérstæð öðrum tungum fremur. Hið fasta form hennar skyldi því aldrei rof- ið. Þeirri stafsetningu og framburði ber ótvírætt að fyl&ja, sem geymir málið cbrjálaðast og ylhýrast. Verði stafsetningar jafn margar þeim, sem rita, ligg- ur í augum uppi, að í óefni er komið. Sama máli gildir skiljanlega um framburðinn. Það verður því umfram allt að leitast við að samræma ritmál og talmál þjóðarinnar sem mest og bezt. Hitt myndi skapa glundroða og firnbulfamb, sem sízt gæti reynzt til heilla. ★ Það virðist næsta veik von, að svo góður gestur sæki íslendinga heim öðru sinni og leggi þeim slík- an skerf í málvernd sinni og Rasmus Kristján Rask. En vonandi er, að íslenzka þjóðin eigi á vorum tím- um framsýna og djarfhuga syni, er kjósi sér hlut- verk Fjölnismanna og samherja þeirra. Alþýða manna ætti að geta hagnýtt sér hina fengnu reynslu og lát- 30

x

Ný kynslóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný kynslóð
https://timarit.is/publication/1866

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.