Heimili og skóli - 01.04.1947, Blaðsíða 14

Heimili og skóli - 01.04.1947, Blaðsíða 14
36 HEIMILI OG SKÓL) — ORÐ í BELG. — Foreldrar mega áreiðanlega vera þakklát- ir þeim, sem standa að þessu riti, því að margar ágætar greinar hefur það flutt og góðar bendingar gefið. Það er líka ágætt ráð að gefa íoreldrunum orðið, og er vonandi, að þeir notíæri sér það. Við stöndum ærið oft í vanda með þessi blessuð börn okkar. Við viljum sjálfsagt öll reyna til að gera þau að dugandi manneskjum og góðum, en förum vitanlega ærið oft skakkt að. Þess vegna eru holl ráð svo kærkomin, eða eiga að minnsta kosti að vera það. Það er nú t. d. með útivistina á kvöldin. Það vita allir foreldrar að sjálfsögðu, að börnum er ekki hollt að flækjast úti fram eftir öllu. En það er hægara sagt en gert, þegar lítil eða engin samtök eru með þetta hjá foreldrum. Það er ekki vandalaust eða vinsælt að banna einu barni útivist, þegar fjöldi félaganna er úti, eggjandi hitt að koma í sollinn. Væri ekki reynandi í bæjum og þorpum, að foreldrar á tilteknum svæðum hefðu með sér samtök um þetta? Það myndi án efa létta undir með öllum, því að vitan- Iega þarf aldrei nema einn gikk í hverja veiðistöð, ef svo ber undir. Ég vildi nú skora á foreldra að taka þetta til athugunar. Sennilega væri ein gata, eða þá máske partur úr götu, e. t. v. partur úr tveimur, nægilegt „hverfi“. Höfuðatriðið er, að allir nánustu nágrannar yrðu samtaka. Oft er talað um ætt og erfðir í sambandi við börn. Mörgum finnst eðlilegt, að þessi eða hinn gallinn eða kosturinn, sem vart verður við hjá börnum, sé erfður, og þýði lítið um það að fást, enginn breyti eðlinu. Ég hugsa, að flestir foreldrar séu harla ófróð- ir um þetta, hvort megi sín meira erfðirnar eða uppeldið. Hvað segið þið nú um þetta, sem betur vitið? F a ð i r. S v a r : Okkur lízt vel á uppástunguna um, að foreldrar í þéttbýli, hafi með sér sam- tök til að koma í veg fyrir útivist barna á kvöldin. Það myndi án alls efa gefa góða raun. Væri rétt að reyna það, og lofa okkur svo að vita, hvernig gengur. Svarið við spurningunni er erfiðara við- fangs, nema þá í löngu máli. Það hefur jafn- an verið um þetta deildt, hvort náttúran sé náminu ríkari eða ekki. Það er að minnsta kosti víst, að enginn gefur sér greind eða ýmsar þær hneigðir og hæfileika, sem sann- anlega fást með erfðum. Hitt er svo annað mál, hvernig uppeldið fer með þennan arf. Og þá er vitanlega hægt, bæði að glæða „neistann“ eða láta hann kulna út. Það er og alveg vafalaust, að heppilegt uppeldi getur gert mikið úr litlu og jafnframt varnað því, að illar hneigðir fái að drottna. Og svo virð- ist nú sem menn telji, að gott uppeldi sé mikilsverðast, þegar öllu er á botninn hvolft. Skynsamlegt er að grennslast eftir og at- huga hleypidómalaust þann stofn, sem barn- ið er vaxið af, kosti hans og galla, og athuga upplag barnsins í því ljósi. Það er nauðsyn- legur grundvöllur til að byggja uppeldis- starfið á. GOSDRYKKIR EÐA MJÓLK. Þegar ég sá það í Hejmili og skóla, að okk- ur foreldrunum var boðið að taka til máls, datt mér í hug að koma þar á framfæri nokkrum orðum, sem ég vildi, að kennarar, en þó einkum foreldrar, tækju til alvarlegrar yfirvegunar. Og það, sem ég vildi þá vekja athygli á, er hið sívaxandi gosdrykkjaþamb barna og unglinga, en það hefur færzt svo í vöxt á síðustu tímum, að ég sé ekki betur en að þessir svokölluðu gosdrykkir séu á góð- um vegi með að útrýma mjólkinni að veru- legu leyti. En það sjá allir, hvaða þýðingu

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.