Heimili og skóli - 01.12.1954, Qupperneq 11
HEIMILI OG SKÓLI
119
Sýnishorn úr rnyndasögum nútimans.
sem fullt frelsi ætti að ráða. Prentfrels-
isreglan sé svo mikilvæg, að hún hafi
verið sett í sjálfa stjórnarskrána.
Einhvern tíma að mörgum, mörg-
um árum liðnum, mun ef til vill upp-
eldismála-rannsóknarstofnun sú, sem
enn er óstofnuð, hafa safnað nægilega.
miklu raunhæfu efni, svo að hægt sé að
gera nákvæman uppdrátt og almennan
af barnshuganum. Ef til vill mun
barnasálfræðileg rannsóknarstofa ein-
hvern tíma verða svo lieppin að finna
af tilviljun rauðan þráð á milli æsku-
glapa og einhverrar teiknisögunnar.
Og þegar svo langt er komið, mætti
at'huga, hvort ef til vill sé eigi ástæða
til að takmarka ofurlítið frelsi teikni-
sagnanna. Þótt ungur glæpamaður aft-
ur á móti afsaki sig með því að „hafa
lesið“ teiknisögu, má auðvitað ekki
meta það um of. Það gæti verið mjög
handhæg og jafnvel útsmogin afsökun,