Heimili og skóli - 01.12.1954, Qupperneq 16

Heimili og skóli - 01.12.1954, Qupperneq 16
124 HEIMILI OG SKÓLI SKÚLI ÞORSTEINSSON: Byggðasafn Ég var við skólasetninaru að Eiðum nú í haust, eins og mörg undanfarin ár. Skólinn er fullskipaður og varð að neita mörgum umsækjendum um skólavist. Það er því ljóst, að skólinn nýtur trausts foreldra og annarra for- ráðamanna unglinga. Margir gestir voru við skólasetningu og f jöknennur var nemendahópurinn og frjálslegur. í snjallri skólasetningarræðu gat skóla- stjóri þess, að næsta dag væri fyrir- huguð námsför í Hallormsstað og Skriðuklaustur. Mun slík námsför vera orðin fastur liður í starfi F.iðaskóla. Á Hallormsstað eiga nemendur að búið að snúast gegn teiknisögunum fyrir langa löngu. Hefur þegar verið drepið á hér að framan, hvers vegna þetta hefur ekki verið gert. En ef til vill er þetta tengt öðrum atriðum ennþá formbundnari. — Hér stöndum við sem sé á umboðsstjórnar- lega flóknum vettvangi, þar sem vegur réttarframkvæmdanna liggur þvert yf- ir leynistigi menningarinnar. Þar er hvorki vettvangur menntamála- né dómsmálaráðherrans, a. m. k. ekki fyllilega, en að nokkru leyti sitt af hvoru. Svo er að sjá, sem enginn kæri sig um að ráðast á þennan óskabita, m. a. af ótta um að verða fyrir tortryggni og grun um bæði skort á umburðarlyndi og einnig valdafíkn, sem nær út fyrir ótvíræðan einkavettvang. En sölu- skýrslurnar sanna, að teiknisögurnar Austurlands skoða skóginn og kynnast því merka þjóðnytjastarfi, sem þar er unnið. A Eiðum er nú verið að rækta upp aftur hinn forna Eiðaskóg. Þar fer fram gróðursetning trjáplantna á hverju vori og vinna nemendur það starf und- ir leiðsögn kennara. Það er þarft verk og fagurt að vekja trú skólaæskunnar á gróðurmold landsins og skerpa til- finningu hennar fyrir fegurð fóstur- jarðarinnar. Þeir tímar munu koma, að allir skólar taka þátt í því ,,að klæða Iandið“. Að Skriðuklaustri eiga nemendur að skoða byggðasafn Austurlands. Það á valda hreinu álagaæði hjá fjölda ung- linga. Það er aðeins örðugt að hafa eftirlit með hættunni. En sama má segja um allt álagaæði almennt. Samt verður að verjast og berjast gegn öllu æði, og reynslu samkvæmt vinnst mest á með því að veita öflugt viðnám. Af minni hálfu hef ég svo að segja leyft mér að tefla fram til hand- töku þeim Skelfi skipstjóra og Ofur- menninu (Superman) sem samnefnara hinna hættulegu teiknisagna. Nú eru þeir leiddir fram til stjórnarskrár-yfir- heyrslu með yður í dómarasæti. Ég fel vður þá til gæzlu sem hættu- lega náunga almennu öryggi, a. m. k. unz mál þeirra hefur verið rannsakað nánar frá sálarheilbrigðislegu sjónar- miði sérfræðinga. Vagn Jensen. (Helgi Valtýsson þýddi).

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.