Heimili og skóli - 01.12.1954, Side 24

Heimili og skóli - 01.12.1954, Side 24
132 HEIMILI OG SKÓLI Getið góðra bóka í fyrra sendi Valdemar V. Snævarr frá sér námsbók í kristnum fræðum fyrir börn á fermingaraldri. Sú bók vakti þegar athygli og var strax tekin til notkunar, enda þótt hún væri ekki út gefin í safni skólabóka rík- isins. Bókin ber þess glögg merki, að vera samin af æfðum kennara. Það er fljótséð, að hún sameinar furðuvel það þrennt, að vera aðgengileg fyrir nemandann, haganleg fyrir kennarann og full af lifandi áhuga fyrir kristinni trú og siðrænu uppeldi. Við samningu bókar þessarar virðist höf- undurinn einkum hafa haft í huga þá mörgu ungu kennara, sem kinoka sér við að kenna kristin fræði, ekki alltaf vegna þess, að þeir vilji ekki gera það, heldur engu síður af því, að þeir finna til vanmáttar síns við að ná þeim tökum á efninu, að það verði i senn aðlaðandi og árangursríkt. Fátt er vandasam- ara fyrir ungan og óreyndan kennara heldur en kristindómskennslan, enda von að svo sé. Lifsreynsluna vantar, en hún er sú undir- staða, sem bezt og nauðsynlegast er að byggja á. Fæstir öðlast trúarsannfœringuna fyrr en með aldri og mörgum árum, en vanti hana, er erfitt að byggja starfið rétt upp. Bókin Líf og játning er í þessu efni góður stuðningur. Verkefnin eru lögð fyrir í æski- legri röð, efninu skipt og raðað af þekkingu og vandvirkni. Margt er gert til þess að vekja athygli lesandans og stuðla að því að orð og setningar festist í minni, svo sem leturbreyt- ingar, undirstrikanir og innrammanir. Fjöl- mörgum viðeigandi ljóðum og versum er skot- ið inn í, einnig nokkrum myndum og teikn- ingum. Er bókin því mjög sviplétt, hvar sem á er litið. Eg tel, að Vald. V. Snævarr eigi miklar þakkir skilið fyrir þetta verk. Ríkisútgáfa námsbóka ætti að kaupa útgáfuréttinn að bókinni og leggja skólunum hana til með öðrum námsbókum. Hún myndi prýða veru- lega það mislita safn. Enn er ótalinn verulegur kostur við þessa kristindómsbók, en hann er sá, hve vel hún samræmist starfrænum kennsluaðferðum. Hún getur verið hjálparbók og handbók í vinnubókarstarfi um kristin fræði, en svo sem kunnugt er, velja margir þá leið, og gefst sumum allvel. Þetta mun höfundurinn líka hafa haft í huga, góðu heilli. Nú hefur þessi maður sent frá sér aðra bók um sama efni, og má segja, að hún sé alger nýjung i íslenzkum bókmenntum. Hún er einkum ætluð litlum börnum og mæðrum þeirra, en þó þannig gerð, að hún mun þykja mjög hentug sem byrjendabók í kristindóms- fræðslu barnaskólanna. Ungir foreldrar, sem eru að ala upp fyrstu börnin sín, svipast um eftir umræðuefnum við þessa dásamlegu ný- græðinga mannlífsins, fletta ekki til einskis upp í bókinni Guð leiðir þig, en svo nefnir Vald. V. Snævarr sína nýju, sérstæðu bók. í henni mun margur hitta gamla kunningja, frásagnir, vers og bænir, og mér fór a. m. k. svo, að bókin brá upp fyrir mér svipmyndum af nokkrum ljúfustu og yndislegustu ævi- stundum mínum. Mér fannst ég vera kominn undir sængina við hlið fóstru minnar elsku- legu, þegar hún var að kenna mér. Slokknað var á steinolíulampanum, en þó var ekki al- dimmt. Norðurljós, tungl og stjörnur brugðu ævintýraljóma á baðstofuþiljurnar. Himin- tunglin urðu hentugt umtalsefni og heillandi — já, himnarnir opnuðust hrifnæmri sál með þeim hætti, að aldrei yfir fyrnist.... Og nú fletti ég lítilli, laglegri bók, óvenju- legum bókmenntaviðburði á íslandi, og heilsa á ný þessum æskuvinum mínum. Svo mun mörgum fleirum fara. Kaupið þess vegna bókina, gefið hana og notið hana. Ég efa reyndar ekki, að sumum geti fundizt eitt og annað öðruvísi hafa mátt betur fara f báðum þessum bókum. Frá mínu sjónarmiði er þó aðeins um svo fá og smá atriði að ræða, að þau hverfa gersamlega í skuggann fyrir kostum bókanna og ánægjunni yfir því, að þær skuli vera til orðnar og komnar í okkar hendur. Bókaforlag Odds Björnssonar á Akureyri

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.