Heimili og skóli - 01.12.1954, Qupperneq 26
134
HEIMILI OG SKÓLI
Fátt er ömurlegra en það, að hafa valið
sér ævistarf, sem vefdur vonbrigðum, þegar
út í það er komið. Þá er ekki alltaf svo auð-
velt að snúa við, og er þá tvennt til, að velja
sér annað starf, þótt búið sé þá að kasta
miklum tíma og fjármunum á glæ, eða halda
áfram að vera á rangri. hillu alla sína ævi. —
Hvorugt er gott.
Ef þessi litla bók gæti verið einhver leiðar-
vísir ungu fólki, sem er að velja sér ævistarf,
þá er vel farið. Hafi höfundur og útgefandi
þökk fyrir hana.
GAMAN OG ALVARA
Jóhann litli hefur fengið sérstakan áhuga
fyrir öllu því, sem varðar tvíbura. Hann á
sem sé tvo frændur, sem eru tvíburar.
Hann veit, að þeir eiga sama afmælisdag,
en þegar hann heyrir það eitt sinn, að ann-
ar þeirra sé lítið eitt eldri, er forvitni hans
vakin.
„Hvernig getur Jens verið eldri en Pét-
ur, mamma?“ spyr hann.
„Hann er fæddur einni klukkustund á
undan hróður sínum,“ segir móðir hans.
„En geta þá ekki tvíburar fæðst alveg á
sama tíma, mamma?“ spyr Jóhann litli
enn.
Móður hans var ekkert um það gefið að
koma nánar inn á þetta umræðuefni, og til
þess að losna við frekari umræður, féllst
hún á, að það gæti átt sér stað. En Jóhann
heldur áfram að hugsa málið, og segir síð-
an:
„En ef kóngurinn og drottningin eiga nú’
tvíbura og báðir fæðast í einu, hvernig á
þá að ákveða, hvor þeirra á að vera krón-
prinsinn?“
Ragnhildur litla er á 5: árinu. Foreldrar
hennar hafa sagt henni, að bráðum eigi
hún von á því að eignast lítinn bróður eða
litla systur, og nú getur hún ekki um ann-
að hugsað en þennan merkilega atburð.
Þetta ber einmitt upp á þann tíma, er faðir
hennar átti að fá sumarleyfi og það hafði
HEIMILI OG SKÓLI
TÍMARIT UM UPPELDTSMÁL
Útgefandi: Kennarafélag Eyjafjarðar.
Ritið kemur út í 6 heftum á ári, minnst
24 síður hvert hefti, og kostar árgang-
urinn kr. 20.00, er greiðist fyrir 1. júní.
Útgáfustjórn:
Snorri Sigfússon, námsstjóri,
Páll Gunnarsson, kennari,
Hannes J. Magnússon, skólastjóri.
Afgreiðslu- og innheimtumaður:
Árni Björnsson, kennari, Þórunn-
arstræti 103, Akureyri.
Ritstjóri:
Hannes J. Magnússon, skólastjóri.
Páls Briems götu 20. Akureyri.
Sími 1174.
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
verið ráðgert að heimsækja frændfólk yfir
á Fjóni.
„Það er ekki vert að við förum neitt að
þessu sinni,“ sagði faðirinn. Það væri ekki
þægilegt ef litli anginn fæddist á ferjunni
milli Slagelse og Korsör.“
Ragnhildur litla varð dálítið hugsandi
út af þessu, en segir svo brosandi:
„Það gerir ekkert til, pabbi. Þú hefur
sjálfur sagt, að böm innan fjögra ára fái
ókeypis far.“
Ása liggur í rúminu. Hún hefur verið
lasin í nokkra daga, og læknirinn úrskurð-
ar, að þetta séu mjög vægir mislingar.
En Ásu líður vel í rúminu, og það er
dekrað við hana, svo að hún unir sér hið
bezta.
Þegar mamma hennar að vanda ætlar að
þvo henni tim kvöldið, segir Ása: „Nú
verður þú að gæta þess, mamma, að þvo
ekki mislingana af mér.“