Heimili og skóli - 01.10.1956, Síða 9

Heimili og skóli - 01.10.1956, Síða 9
HEIMILI OG SKÓLI 95 og þá mundum við £á góðar reiknings- bækur. Reikningskennsla í Noregi fannst mér traust og nákvæm. Enda fara skólar þar bægar yfir en við og gefa sér betri tíma. Próf og deildaskipting. Próf þekkjast varla í norskum barna- skólum. Burtfararpróf eru aðeins í þrem greinum, norskum stíl, reikn- ingi og ensku. En í norskum barna- skólum gefa kennararnir vitnisburð um framför barnsins og ástundun þrisvar til fjórum sinnum á vetri hverjum. Eru þessir vitnisburðir gefn- ir með fimm stafamerkjum: ug., mg., g., ng., lg. Þetta gerir það að verkum, að kennarinn er frjálsari að því hvern- ig hann hagar náminu. Aðaláherzlan verður því ekki lögð á minnisatriði, heldur starfið í skólanum. Ég efast um að hægt verði að fá frjálst starf með vinnuskólasniði inn í skólana meðan við höldum dauðahaldi í prófin í les- greinunum. Vitnisburðir í norskum skólum, sem gefnir eru 3.-4. sinnum á vetri, eru einnig líklegri til að liafa áhrif á nám barnsins til bóta .en vor- prófin okkar, þegar vetrarnámi er lokið. Kennslubækurnar norsku breyttust líka, þegar prófin voru afnumin. Áður voru þær stuttar beinagrindur, ætlað- ar til að læra þær. Nú eru þær lengri og meira lifandi og fremur ætlaðar til að leita þar fróðleiks en tileinka sér 'hann. Og vinnubækur eru mikið not- aðar og annað frjálst starf. í norskum skólum er börnunum ekki skipt í deildir eftir getu. Þar eru bæði greind og treggáfuð börn saman í deild. Deildaskiptingin fer oft eftir bæjarhlutum. Öll bömin koma ólæs í skólann. Talið er að betra sé að hafa greind og treggáfuð börn saman en hvor út af fyrir sig, því að þau dug- legri lyfti hinum alltaf eitthvað. Að- eins þau börn, sem ekki hafa hærri greindarvísitölu en 70—85 era höfð í hjálparbekkjum. í þeim eru ekki nema 12—15 í deild. Formskriftin. Formskriftin er eingöngu notuð í norskum skólum. Hún hefur verið tekin upp á síðari árum. Norskum kenmpum finnast kostir hennar svo miklir, að þeir hafa tekið hana upp. Höfuðkostir hennar eru, að hún er læsileg og auðvelt að 'breyta prent- stöfum í formskrift í sambandi við lestrarnám. í Danmörk vinnur form- skriftin líka á. Ég gæti vel trúað, að við fáum hana hingað eftir nokkur ár. En ég tel, að það sé ekki rétt að hafa formskrift og okkar venjulegu skrift í sama skóla, það eigi að vera annað hvort eða. Nýjar skólabyggingar. Ég sá marga nýja skóla í Noregi. Flestir eru þeir byggðir £• álmum og tveim hæðum. Þó sá ég einn nýjan skóla í Þrándheimi, Landeskolen, sem var aðeins ein hæð. Var hann mjög vandaður og notaður fyrir æfingaskóla frá Kennaraskólanum á Hlöðum. Hljóðeinangrunarplötur eru í öll- um loftum í kennslustofum og sums staðar timbur yfir göngum, og er þá útilokað allt bergmál. Smábarnaskóla,

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.