Heimili og skóli - 01.10.1956, Qupperneq 15

Heimili og skóli - 01.10.1956, Qupperneq 15
HEIMILI OG SKÓLI 101 lang algengust í Noregi. En höfundur þessarar bókar aðhyllist aðferð, er hún kallar heildaraðferðina (heldesme- toden), það er að segja eins konar sam- bland af hljóðaðferð og orðaaðferð. Er þýzkur kennari, Artur Kern, mikill talsmaður íhennar. Byrjað er á mynd- um, sem barnið þekkir og orð tengd myndunum. Þegar barnið hefur svo lært dálítið af þessum orðum, eru þau liðuð sundur og þá kennd hljóðin. Þá er prent lært jafnframt og stutt með því að lestrarnáminu. Jafnframt lestr- arnáminu er skipulegt nám í átthaga- fræði. í síðari hluta bókarinnar er skýrt frá verkefnum og aðferðum frá viku til viku fyrsta árið. Fyrir jól á barnið að kunna nokkuð af orðum, hljóðin öll og geta lesið þriggja stafa orð. Viðfangsefni fyrstu vikumar í áttahagafræði eru barnið, skólinn, heimilið, haustið, veturinn, jólafastan og jólin. í byrjun notar hún sérstök lestrarspjöld er hún hefur búið til. — Oline Sukkestad hefur oft kennt á kennaranámskeiðum, en er nú æfing- arkennari við kennaraskólann á Hamri. Niðurlag. Að lokum vil ég svo draga saman ofurlítið áf því, sem hér hefur verið drepið á. Krafa tímans er meira starf barna í sambandi við námið. Vinnu- skólaaðferðin kemur á móts við þess- ar kröfur. Þó má aldrei missa sjónar á því, að allt bóknám byggist á því, að nemandinn lesi sjálfur vel um náms- efnið. Og kennsla í aðalnámsgreinum skólans, móðurmáli, reikningi og skrift, verður alltaf að byggjast á æf- ingu og þjálfun. En ég hygg, að lesgreinar geti verið eins konar salt í daglegu starfi skól- anna, ef hægt er að lofa börnunum að vinna þar sem mest sjálfstætt. En hér rekum við okkur á marga agnúa í því efni. Okkar skólar eru bundnir í próf- viðjar, sem ekki þekkjast á hinum Norðurlöndunum. Ég álít að þekking- arpróf í lesgreinum eigi að hverfa úr barnaskólunum, þótt einhver próf séu í móðurmáli, reikningi og skrift. í öðru lagi vantar okkur hentugar hand- bækur og lestrarstofur við skólana. Hins vegar getum við kennt les- greinar í námskeiðum og aðeins tekið eina eða tvær fyrir í einu. Skipt þeim tíma milli munnlegrar kennslu og bekkjavinnu, og með því móti lofað börnunum að vinna eitthvað sjálf- stætt, helzt í flokkum. Flokkavinna hefur margs konar gildi eins og áður hefur verið bent á. Þegar ég lít nú til baka yfir ferð mína um Noreg, hefur hún sennilega haft mest gildi fyrir mig á þann hátb að hún ihefur ihaft lífgandi og örfandi áhrif, og aukið áhugann á því st.arfi, sem við kennarar vinnum. En það eru mikilvægustu áhrif allra ferðalaga. Þá er mér einnig ógleymanlegt ýmislegt, sem ég kynntist úr norsku þjóðlífi, ekki sízt ungmennafélaganna og áhuga þeirra fyrir norrænum menn- ingararfi og íslandi. Ferðin opnaði einnig augu mín fyrir ýmsu, þar sem við stöndum að baki ihinum Norður- landaþjóðunum. En í skólamálum má margt af þeim læra. Og engin Norður- landaþjóðin mun taka íslendingum eins vel og Norðmenn, enda munu þeir hafa mestan áhuga fyrir íslandi.

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.