Heimili og skóli - 01.10.1956, Síða 13
HEIMILI OG SKÓLI
99
frjálsa starf barnanna með nokkru
móti ganga út yfir grundvallarkennslu
í reikningi og móðurmáli. Hann lætur
stundir í reikninsji 02; móðurmáli
halda sér. Biblíusögur kennir hann
með samtölum. Þó tekur hann stund-
um teiknitíma og skriftartíma í þjón-
ustu flokkavinnunnar.
Ég hef aldrei séð neina bók eins
auðuga af verkefnum og þessa
bók þeirra Vangérudshjónanna. Það
er því skiljanlegt, að henni sé vel tek-
ið af kennarastéttinni, að minnsta
kosti öllum þeim, sem vilja einhverjar
nýjungar í kennslunni. Það er einnig
sérstakt fyrir hana að ná yfir bæði
yngri og eldri deildir skólans. Hér er
átthagafræðin útfærð á mjög skemmti-
legan hátt.
Mér skildist, að Vangerud hefði að-
eins eina lesgrein í einu, 02; í flokka-
vinnu grípa þær mjög hver inn í aðra.
Annan norskan kennara 'hitti ég, sem
sagðist hafa í mörg ár kennt landa-
fræði, náttúrufræði og sögu sína tvo
mánuði hverja námsgrein, en aldrei
nema eina í einu. Virtist sér það gefa
betri raun, en að vera rneð allar þessar
námsgreinir í einu. Tel ég það þess
virði, að það sé athugað. Þá er hægt að
einbeita áhuga barnsins að einu verk-
efni.
Vinnuskóli. — Fræðsluskóli.
Hér fara á eftir nokkrar smágiein-
ar úr bók Vangerudshjónanna í laus-
legri þýðingu:
„Þegar námsskráin var samin, var
gengið út frá, að kennararnir mundu
smátt og smátt beita nýjum aðferðum
í kennslunni. Skóli okkar hefur að
mestu verið fræðsluskóli, en nú átti
hann að verða vinnuskóli. Nú gerist
það ekki á einum degi, að gömlum
skóla sé breytt í nýjan. Til þess þarf
undirbúning. Okkur vantar enn hús-
næði, kennslutæki, góðar hjálparbæk-
ur o. fl., en við verðum að gera það
bezta úr því, sem til er. Við skulum
að eins slá því föstu að vinnugleði og
athafnir eiga að vera einkunnarorð
okkar. Vinnuskóli, ekki yfirheyrslur,
er kjörorðið.
Hvað er þá vinnuskóli? Við skulum
í eitt skipti fyrir öll slá því föstu, að
vinnuskóli er það ekki, að börnin fái
að gera allt, sem þau vilja sjálf. Það er
aðeins skóli, þar sem börnin fá fræðslu
á annan hátt en áður. Fræðsluna á
ekki að afhenda börnunum í dagleg-
um, matreiddum réttum, en efni
fræðslunnar á að safna saman, og
börnin eiga að vinna úr því, undir
handleiðslu kennarans. Nýi skólinn er
ekki einveidi. Þar er skipulagogábyrgð
í nýjum formum. Sú þekking, sem
börnin fá á þennan hátt, verður miklu
verðmætari, af því að þau hafa fundið
hana sjálf og hún orðið hluti af þeirra
eigin reynslu. Þau verða miklu víð-
sýnni en áður, þegar þau gengu eftir
hinum beina végi, án þess að líta neitt
til hliðar. Beini vegurinn er að vísu
stytzta leiðin milli tveggja staða, en
ekki alltaf sá heppilegasti.
------Fræðslan er ekki eina tak-
mark skólans, og ekki það dýrmætasta.
'Uppeldið á að vera aðaltakmark hans.
Hvert er viðhorf vinnuskólans í því
efni? Þetta er mjög mikilvægt atriði.
Það er ekki aðeins spurt um verkefni
og livernig þan eru unnin, heldur
einnig: Er nokkur þörf fyrir þessi