Heimili og skóli - 01.10.1956, Qupperneq 21

Heimili og skóli - 01.10.1956, Qupperneq 21
HEIMILI OG SKÓLI 107 bannað. Það er t. d. ekki bannað með neinni reglugerð að berja að dyrum, ef spjaldið á herbergishurðinni utanverðri gefur til kynna, að sá, sem inni er, vilji fá að vera í næði, og það er meira að segja mögulegt að fara inn, án þess að berja að dyrum, því að hér er fátt herbergislykla, en það hvarflar ekki að neinum að ónáða þann, sem vill fá að vera í friði, og þess vegna er spjaldið á hurðinni öruggara öll- um lyklum. Þú getur líka verið viss um, að enginn tekur skranið þitt, þó að her- bergið þitt sé ólæst. Það væri allt of auð- velt til þess að nokkur gæti haft gaman af því, enda ekki tízka hér í Odenwald. í grein, sem skólastjórinn skrifaði fyrir nokkru, er að finna sögu, sem gefur mjög góða hugmynd um þann anda, sem ríkir hér í skólanum, og þess vegna verður hún endursögð hér: „— kærleikurirm umber allt“. — „Ekki fyrir alllöngu ákvað kennarafund- ur að víkja úr skólanum átján ára gömlum pilti, er komið hafði til skólans úr stór- borg. Hann hafði þegar tvívegis fengið reynslutíma framlengdan. Pilturinn var dæmi um stórborgarungling ,malbiksblóm, og kom öllu skólakerfinu á ringulreið með óskammfeilni sinni. En er ákvörðun kennarafundar komst á allra vitorð, sóttu nemendur efri deildar mig heim áhýggju- fullir. Þeir álitu dóminn of harðan. Þeir álitu einkum, að pilturinn yrði fyrir öllum þunga- „hegningar11, er hann æ.tti ekki ábyrgð að einn. Þeir, hópur félaga hans, ættu honum jafnmikla sök, bæru jafn- mikla ábyrgð á því, sem fram hafði farið, þar sem þeim hafði ekki tekizt að hafa já- kvæð áhrif á hann, svo sem andi skólans mælti fyrir um. Enda var það rétt. Ég hafði alltaf beðið þess, að eldri félagarnir segðu drengnum alvarlega til syndanna, en nú var það of seint. Ráðstefnan hafði fellt úrskurð sinn. Þeir hefðu átt að hugsa til þess fyrr. En ekki þögnuðu mótmæli piltanna. Hvernig þá? Þeir höfðu ekki séð verkefnið, sem beið þeirra, Þeir þrættu og deildu: Þið fullorðna fólkið eruð alltaf að tala um traust. Treystið okkur þá núna. Við skulum bæta um drenginn. Áhrif og vald kennaranna og ákvörðunar þeirra stóð ósættanlega andspænis traustregl- unni. Enginn meðalvegur var til. En kennurunum til hróss má segja, að þeir skildu aðstæðurnar. Þeir ómerktu ákvörðun sína. Félagarnir fengu sinn „Barrabas", og ég vil feginn bæta við, að pilturinn, er þegar var dæmdur, er að ári liðnu orðinn einn jákvæðasti einstaklingur samfélagsins. Traust fer fyrir valdi. Traust ber og vekur nýja krafta. Þolinmæðin veitir þeim færi að þroskast. Og alúð og kærleikur valda hamskiptum.“ Mér þykir þetta fallega sagt. Og hún er mjög einkennandi fyrir það andrúmsloft, sem hér er að finna. Við tölum stundum um eflingu lýð- ræðis og baráttu gegn einræðisöflum, og er ekki nema gott eitt um það að segja. En hitt er lakara, að margir skilja það ekki enn, að meiður lýðræðisins verður hvorki hávaxinn né fagurlimaður, nema sé öruggurlega rótfestur í skólunum. Ein- faldasta leiðin til þess að skilja þessa stað- reynd er að veita því athygli hvaða leiðir þeir fara, sem vinna markvisst gegn lýð- ræðinu. Hvar hefja þeir baráttuna? Og hvernig er hún háð? Tvær mannéerðir. Þeir byrja auðvitað í skólunum. Þar er ein skoðun fyrirskipuð, ein söguskoðun rétt, ein viðurkennd bók í hverri grein, aðrar brenndar, ef þær hafa verið ritaðar, einn landsdrottinn. Þetta eru ákaflega áferðarfallegir skólar. Börnin marséra litl- um fótum, standa upp, setjast niður, eins og þegar byssur eru axlaðar eða felldar, prútta aldrei við kennarann, þegja þegar þeim ber, janka þegar við á. Og ef stjórnin er reglulega barngóð, eins og t. d. í Rúss- landi, þá færir hún þau strax í einkennis- föt í skólunum, en annars staðar voru

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.