Heimili og skóli - 01.10.1956, Qupperneq 17

Heimili og skóli - 01.10.1956, Qupperneq 17
HEIMILI OG SKÓLI 103 I bókasafninu. isins og fyrstu tvær vikurnar af skóla- dögimum í septembermánuSi. í fyrra var hann með krakkana niðri í Rhonedal. Þar hefur félagsskapur nokkur, sem einkennir sig með bókstöfunum F. I. C. E., bækistöðvar, en Jouhy er einn af forystumönnum samtakanna. Markmiðið er að greiða fyrir gagnkvæmum kynnum æskufólks frá ýmsum löndum. Fram til hádegis dag hvern hélt Jouhy uppi kennslu, aðallega í frönsku og sögu, en eftir hádegið dreifði hann nemöndunum. Einn fékk að vinna í lyfjabúð, annar í verzlun, þriðji á sveitabæ, fjórði í járn- smiðju o. s. frv. Vitanlega fengu þeir ekk- ert kaup, en þeir kynntust lífi fólksins, lærðu að tala mál þess. Það var ungling- unum ómetanlegt, og allir kunna þeir að segja frá gestrisni og góðleik Frakkanna, sem þótti gaman að fá þessa ungu Þjóð- verja í heimsókn og hlæja að hinni bjög- uðu og skringilegu frönsku þeirra. Verður farið til íslarxds? í ráði er að skipuleggja svipaða hópferð til Englands fyrir þá, sém hafa ensku að sérgrein til stúdentsprófs. Kurt langar til þess að koma hið fyrsta aftur til íslands með fjölskyldu sína, sjá fornar slóðir, heilsa upp á gamla vini. Ég held, að hann ætli jafnvel vestur á firði með Hallgrími Jónassyni til þess að vita, hvort góðhestur einn þar sé búinn að gleyma frönskunni, sem hann lærði af vörum einnar yngismeyjar hérna um árið, og vitanlega fer hann líka vestur á Mýrar til þess að hressa upp á sumarbústaðinn sinn. En þó að það sé gaman að vera frjáls, þá væri skemmtilegra að geta komið með hóp nokkurra nemenda. Hann á það til að segja svo furðulegar og fallegar sögur af þessu undarlega eylandi úti við pól, að á hverju ári koma margir og segja: „Herra Zier! Haldið þér að það væri mögulegt fyrir okkur að komast til ís- lands að sumri?“ Enn sem komið er, hefur hann svarað þessu neitandi. Það er of dýrt .Þegar við höfum talað um þetta, erum við svo bjart- sýnir að trúa því, að dvölin á íslandi þyrfti ekki að verða mjög dýr, en hvernig á að koma 10 unglingum fram og aftur yfir hafið, án þess að kostnaðurinn við það verði þeim óbærilegur? Það vitum við ekki. En gaman væri það, ef 10 ungmenni

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.