Heimili og skóli - 01.10.1956, Side 12

Heimili og skóli - 01.10.1956, Side 12
98 HEIMILI OG SKÓLI reglusemi og iðni. Á hverjum föstu- degi áttu börnin, eitt úr hverjum flokki að dæma um verðlaunin. Voru svo verðlaunaspjöldin útfyllt og fest upp. Meðan ég var þarna ,lét hann börnin dæma um ein verðlaun. Þau , fóru út fyrir' hurðina og komu að vörmu spori inn aftur og höfðu þá komið sér saman um þetta. Mér fannst þetta athyglisverð aðferð til að halda uppi aga, og þetta var úrvalskennari. Þá hitti ég æfingakennara, Thorleif Öisang, í Osló. Hann er ritstjóri skólaritsins Osló-skólinn. Hann lætur börnin vinna í flokkum að vinnubóka- gerð í landafærði. Fyrst fer hann munnlega með þeim gegnum efnið. Svo notar hann mánuð eingöngu til vinnubókagerðar og hefur til umráða 3 stundir 2 daga í viku. Notar hann bæði sögu- og náttúrufræðitímana til þess þennan mánuð. Einn nemandi frá kennaraskólanum fylgist með í hverj- um flokki, en þeir eru 7 alls og 4 börn í hverjum. Byrjað var á því að safna efni með því að fá upplýsingarit úr sendiráðunum og auglýsingabæklinga úr ferðaskrifstofunum. Árangurinn var ágætur, fjölbreyttar og góðar vinnubækur, og þekking barnanna mikil í þessari grein. Þau vissu t. d. óvenjulega mikið um ísland. Þessi kennari kenndi með samtölum og frjálsum vinnubrögðum. Merkileg bók. Meðan ég dvaldi í Osló, keypti ég bók um vinnuskóla, sem kom út 1955. Hún heitir „Frá sandkasSe til grupp- arbeid* og er eftir hjónin Sonju og Thorolf Vangerud, en þau eru bæði æfingakennarar. Þessi bók er ekki að- eins hugleiðingar um þessi efni. En í henni eru 90 verkefiji, og er sýnt hvernig ihægt er að kenna frá 1-7 bekk með vinnuskólaaðferð. Og öll þau verkefni, sem eru í bókinni, eru reynd af þeim hjónum í kennslu þeirra. Er bókin ætluð kennurum í barnaskólum og nemendum í kennaraskólum. Hún hefur fengið mjög góða dóma bæði í norskum, dönskum og sænskum blöð- um. Þegar ég ihafði eignazt þessa bók, fór ég og hitti Vangerud og hlustaði á kennslu hjá honum. Hann sýndi mér mikið af vinnubókum og annarri bekkjarvinnu. Svo var ég heima hjá honum eitt kvöld. En ég var svo óheppinn, að Sonja, kona hans, var á ferðalagi með bekk sinn, en mér var sagt, að hún væri ekki síður snjöll en hann. Gamalt og nýtt. Og hvað sagði svo Vangerud? Hann sagði, að 'hann væri að reyna að sam- eina gamalt og nýtt í kennslu sinni. Gallinn hjá nýskólamönnunum í Gautaborg, sagði hann, hefði verið sá, að þeir gerðu aðferðir sínar ekki nógu einfaldar, því kæmu engir í fótspor þeirra. Þeirra aðferðir byggðust á því, að kennarinn væri úrvalsmaður, eins og þeir voru. Svo blönduðu jreir náms- greinum of mikið saman, svo að reikn- ingur og móðurmál urðu stundum út- undan í kennslunni. Kennsla mín, sagði hann, er sam- bland af gömlu og nýju. Hann kenndi lesgreinar með samtölum, vinnubók- um og flokkavinnu. En ekki mætti hið

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.