Heimili og skóli - 01.10.1956, Síða 22

Heimili og skóli - 01.10.1956, Síða 22
108 HEIMILI OG SKÓLI Vetur í Óðinsskógi. stofnuð sérstök barnafélög — Hitler- Jugend, Balilla, þar sem blessuð börnin fengu líka eitthvað fallegt til að fara í. Og þegar skólanum lýkur, er takmarkinu náð. Þá er útskrifaður hugsunarlaus bjálfi, troðfullur af ósamstæðum minnisatriðum, er hlýðir öllum fyrirskipunum, sem að of- an koma, trúir því, að hann sé í sældar- ríki, þó að hann hafi hvorki til hnífs né skeiðar, hleypur öskrandi til illvirkja, ef einhver nennir að siga honum. Þeir, sem þetta skipuleggja, vita vel, hvað klukkan slær. Þeim er alveg ljóst, hvers konar manntegund það er, sem þeir þurfa á að halda, og reynslan sannar, að þessa manngerð geta þeir fengið, eimmgis með því að leggja grundvöll hennar í skól- unum. Án þess væri það óhugsandi. Þeir, sem einræði unna í raun og sann- leika, ættu að íhuga þetta, kynna sér jöfn- um höndum skólakerfið eins og það var á dögum nazistanna, og fylgjast svo með þeim nýjungum, sem nú eru uppi. Ef við sjáum í skólakerfi okkar eitthvað eða e. t. v. margt svipað því, sem leiddi ógæfuna yfir æskulýð Þýzkalands á árumnn 1933— 1945, þá má vel vera, að þar finnum við einmitt meginástæður þess, að lýðræði er í dag mörgum þeim tungumjúkt vígorð eitt, sem í hjarta sínu eru svo þröngsýnir og illa upp aldir, að einræðið eitt er þeim í raun og veru eiginlegt. Brjóstvörn lýðræðis og mermingar. Lýðræði er annað og meira en það að mega velja um tvo lista í kosningum fjórða hvert ár. Lýðræði grundvallast á fólki, sem þorir að hugsa, nennir því, get- ur það. Það krefst andlegs frelsis og ótta- leysis við tjáning þess, sem býr hið innra. Það er eðli þess, að við tökum fullt tillit til annarra en sjálfra okkar einna í samfé- laginu. Það krefst umburðarlyndis og góðleika. Það krefst ábyrgra einstaklinga. Það krefst manngerðar, sem er gjörólík þeirri, sem einræðisríkin þurfa á að halda, og hin eina varanlega efling þess er að skapa henni vaxtarskilyrði. Ég var í dag að virða fyrir mér stú- dentaefnin ungu. Eftir fjóra daga lýkur prófum þeirra. Að sjö dögum liðnum munu allir farnir héðan. Ég veit ekki, hvað verða mun um þetta unga fólk, en eitt þykist ég vita, að ekki muni fyrir koma: Það mun aldrei hneigjast til blindr- ar ofstækisstefnu. Og ef til vill er það full- vissan um, að svo muni ekki verða, sem veldur því, að mér finnst að 500 þúsund æskumenn, sem notið hefðu sams konar uppeldis og þessi hópur, væru öruggari brjótsvörn lýðræðisins í Þýzkalandi, en sú hálfa milljón, sem ákveðið hefur nú verið að vígbúa. Ég er á förum að þessu sinni, fer með fyrsta vorilminn í nefinu. En ef ég mætti ráða, þá kæmi ég hingað aftur keifandi upp dalinn kvöldið fyrir sumarhátíðina miklu, einhvern tíma laust fyrir miðjan júlímánuð. Og það er enginn úti, því að þetta er um kvöldverðarleytið .Þess vegna setzt ég á ferðatöskuna mína hérna fyrir neðan gluggann minn á Goethehaus, þurrka af mér svitann, anda að mér ilmi kvöldsins, blæs mæðinni. En svo kemur skólastjórinn út með all- an kunningjahópinn að baki sér, slær á lærið og segir: „Nei, hver skollinn! Ertu kominn aftur, drengur? Jæja, vertu velkominn.“ Odenwaldschule í marz 1955.

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.