Heimili og skóli - 01.10.1956, Blaðsíða 24

Heimili og skóli - 01.10.1956, Blaðsíða 24
110 HEIMILI OG SKÓLI Kennarar á afmœlis- fundinum. að. Kennarafélag hafði starfað hér á árunum 1917—1922. En í því voru bæði kennarar barnaskólans og þáver- andi Gagnfræðaskóla, og var Stefán skólameistari formaður þess. Það gaf út ágæta lestrarbók á þessum árum. Kennarafélag Eyjafjarðar var stofn- að á Akureyri fyrir forgöngu Snorra Sigfússonar 4. okt. árijj 1931. Stofn- endur voru 17, og eru þeir allir á lífi, en aðeilns 5 við kennslustörf ienn. Fyrstu -stjórn skipuðu: Snorri Sig- fússon, formaður, Ingimar Eydal, gjaldkeri, og Hannes J. Magnússon, ritari. Var Snorri formaður félagsins, unz hann flutti alfarinn úr bænum, eða til ársins 1954. Hannes J. Magn- ússon hefur verið í stjórninni frá stofnun félagsins, fyrst sem ritari, en síðan sem formaður. Félagið hefur rætt uppeldis- og skólamál á fundum sínum. Auk þess hefur það staðið fyrir 7 kennaranám- skeiðum á þessum tíma, þar sem fyrir hafa verið tekin hin margbreytileg- ustu viðfangsefni kennslutækninnar. í sambandi við námskeiðin, svo og fundina hverju sinni, hefur verið fluttur fjöldi erinda um uppeldis- og skólamál. Þá ihefur félagið haft nokkra út- gáfustarfsemi með höndum. Það hefur gefið út tímaritið Heimili og skóla í nálega 15 ár, eða frá 1942. Hefur það jafnan verið höfuðtilgangur rits- ins að vinna að aukinni samvinnu og skilningi milli heimila og skóla, en hefur enn ekki náð nægilegri út- breiðslu. Þá gaf félagið út vinnubók í átt- hagafræði 1948. Hún var seld skólum út um land og er nú nálega uppseld. Valdimar V. Snævarr flytur ræðu.

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.