Heimili og skóli - 01.12.1956, Síða 8

Heimili og skóli - 01.12.1956, Síða 8
116 HEIMILI OG SKÓLl — Ó, ég skil það svo vel, hann hefur eflaust orðið ástfanginn af yður, óðar og hann sá yður. Hún roðnar enn meira, og spékopp- arnir dýpka, en hún andmælir mér ekki. Síðan heldur hún áfram: — Hann var nú enn hrifnari af Noregi en áður, er hann fór heim aftur að loknu sum- arleyfi, og átti aðeins þá ósk eina að geta komið aftur sem allra fyrst. Og það gerði hann líka, segir hún, — þeg- ar sama sumarið. Það var 1951, þá var, ég orðin 20 ára, en hann 26. — Og hvað svo? spyr ég með eftir- væntingu. — Jæja, svo trúlofuðum við okkur, segir hún, og hann hóf þegar sömu baráttuna og aðrir ungir menn, sem ætla að kvænast. Hann þurfti að fá vinnu, og við urðum að fá íbúð. í Ósló var hvorki íbúð né herbergi að fá. En hann var svo heppinn að fá vinnu í verksmiðju hérna á Söndum, rétt við Sandafjörð. Og þar fékk hann einnig herbergi. Og sumarið 1952 vorum við gefin saman í hinni gömlu, fögru Sandakirkju, rétt utan við bæinn Sand- fjörð. Liv er svo áköf að segja frá þessu, að hún bendir á vegginn milli glugg- anna: — Þarna hanga brúðkaupsmynd- irnar okkar. Ég geng yfir að veggnum og horfi á þessi gleðibjörtu og himin- lifandi glöðu, ungu hón. Grannvaxin brúðurin heldur brúðarblómvendi hans fast að brjósti sér. Það eru glæsi- legustu rósir sumarsins í fegurstu lit- brigðum. Og brúðguminn, hár vexti og dökkur á brún og brá, stendur við hliðina á henni og horfir hrifinn á brúði sína. Margar blindar konur verða að lifa einmana alla ævi, ógiftar og barnlaus- ar. Aftur á móti er það alls ekki sjald- gæft, að sjáandi konur giftist blindum mönnum, — hins er sjaldan getið. En Liv fékk nú sinn Roy, og ævintýri þeirra hélt áfram. í stað eins herberg- is fengu þau innan skamms lítið hús, hvítt og ljómandi fallegt, í gömlum trjágarði. Ég lít út um gluggann á hin geysimiklu, tignarlegu, gömlu eikitré og á kræklótt, sjálfsprottin epla- og mórellberjatrén. Og frú Liv segir enn- fremur, að óðar er vorar sé rétt fram- undan dyrunum indælis grasflöt, þar sem bömin geti velt sér, eins og þau lystir. Og Liv lítur ástúðlega niður á báða smásnáðana sína. Indæla, patt- aralega snáða, sem hafa frískan hör- undsblæ móður sinnar og dökkar, drátthreinar brúnir. Sá eldri, Guy (frb. gaj), sextán mánaða herramaður, horf- ir á mig, ókunnu konuna, með greini- legri tortryggni og þrýstir sér fast upp að móður sinni. En öðruhvoru lítur hann í laumi á Glen (frb. glenn) litla, sem er aðeins fimm mánaða og situr í skauti móður sinnar. Ég hef sjaldan orðið fyrir jafnsterkum áhrifum, og fátt fengið eins mikið á mig og að sjá þessa blíðu, blindu konu með rósóttu svuntuna og tvo velhirtu smádreng- ina sína, sem hjúfra sig að henni. Þeir eru algerlega háðir henni, sem sjálf sér þó ekki neitt. Ef til vill eru engin önnur börn jafn-nátengd móður sinni og fá að vera jafnmikið hjá henni sem einmitt þessir tveir drengir. Liv Cress- ey heldur sig mest heima. Hún lifir öllu sínu lífi á litla heimilinu hjá manni sínum og börnum. Guy hjúfrar sig ennþá fast að móð- ur sinni, en lítur nú allt í einu upp og brosir. Hann heyrir gauk-klukkuna

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.