Heimili og skóli - 01.12.1956, Page 20

Heimili og skóli - 01.12.1956, Page 20
128 HEIMILI OG SKÓLI Þá kemur að því, sem verða skyldi aðalatriðið í þessum 'hugleiðingum, en það er matargerðin. Allir hljóta að skilja, 'hve ákaflega þýðingarmikið það er fyrir hina fjöl- þættu lífsbaráttu, að einstaklingurinn sé fær um að mat’búa fyrir sig og aðra sjálfur, ef svo ber til, sem oft er, að hinni hefðbundnu verkaskiptingu kynjanna verði ekki við komið. Þetta skeður þráfalt, ekki sízt í núverandi og verðandi þjóðfélagi, þegar öll „heim- ilishjálp' og „vinnukonustarfsemi“ til- heyrir fortíðinni, ef svo mætti segja. Með slíkum undirbúningi í æsku spar- ast ekki einungis mikið af peningum síðar, heldur og miklu fremur mikið af óþægindum. Og einnig mætti benda á það, að oft er heimilislíf, hjónaband og gagnkvæmur skilningur miklu betra, þar sem húsbóndinn get- ur tekið til hendinni við heimilisstörf- in, hvenær sem þörf þykir. Sannleikurinn er sá, að vel greindir og lagnir drengir geta lært að búa til mat á ótrúlega stuttum tíma, ef skipu- lega og vel er að farið. Og reynslan 'hefur sýnt, þar sem svo er unnið, að drengir eru sízt verr 'hæfir né áhuga- lausari en stúlkur við matargerð, þeg- ar út í það er komið. Fyrst er að kenna suðu á öllum al- gengum mat :fiski, kjöti og grautum. 'Þá hvernig nota skuli mjólk, egg og grænmeti, og er hið síðastnefnda mjög mikils virði samkvæmt skilningi nú- tímans á hollustugildi jarðargróða. Svo þarf að læra að laga alls konar hrærðan mat, og bezt að byrja á pönnukökugerð, en með því lærist óbeint gerð ýmiss konar ídýfu eða sósutegunda. Þá er að útbúa nesti og smurt brauð, sem er karlmönnum sérstaklega nauðsynlegt í öllum ferðalögum nú- tímans. Síðast mætti nefna kökubakstur, og er þá einsætt að kenna einungis hið algengasta, svo sem jólabrauð og hveitibrauð, kleinur og lummur. En það verður svo handhæg undirstaða, ef lengra þykir þörf að halda. Ekki þarf að minna á, hve sjálfsagt er að drengir læri svo auðveldustu að- ferðir við uppþvott eftir máltíðir, og gangi þar að verki ekki síður en kven- fólkið. Uppþvottur þykir leiðinlegt starf, og er því vinsælt og vel þegið, að sem flest heimilisfólk geti þar leyst hvert annað af hólmi. Svipað mætti segja um að venja drengi við að leggja á borð og gera þeim þá um leið ljósa og tama borðsiði og kurteisi við mál- tíðir. Gott er að venja drengi á það, að gera reikning yfir máltíðir fyrir heim- ilisfólkið eða vissan fjölda fólks. Þarf þá að gjöra greinarmun á ihversdags- máltíð og hátíðamat, og sýna fram á, hvernig hinar ýmsu matartegundir eru misjafnar að gæðum og verðmæti. Þannig vaknar ósjálfrátt hugsun fyrir sparnaði og forsjálni. Það, sem stefna ber að í þessu starfs- uppeldi drengja, mætti taka saman í eftirfarand iatriðum: 1. Hirðing og umgengni í einkaher- bergi og stofu. Glæddur smekkur fyrir híbýltprýði og þokka innanhúss. 2. Smáviðgerðir, þvottur, pressun og meðferð algengs fatnaðar. Vakinn áhugi fyrir smekklegum og þokkaleg- um klæðnaði og athygli á vönduðum efnum til fata.

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.