Heimili og skóli - 01.12.1956, Síða 23

Heimili og skóli - 01.12.1956, Síða 23
HEIMILI OG SKÖLI 131 Vetrarmorgun einn bar svo við, að herra Madsen svaf yfir sig, svo að hann gat ekki náð til skólans kl. 8, en bað kennslukonu, sem hann hitti og var á leið til skólans, að segja skólastjóran- um, að hann þyrfti ekki að gera neinar ráðstafanir sín vegna, því að hann kærni kl. 9. Þegar Madsen kom í skólann kl. 9, hitti hann skólastjórann á tröppunum. Um leið og hann heilsaði Madsen brosandi, sagði ihann: ,,Þér hefðuð sannarlega ekki þurft að gera mér orð vegna bekkjarins, því að hvorki ég né nokkur annar veitti því athygli, að hann var kennaralaus. Börnin hafa, algjörlega séð um sig sjálf.“ Herra Madsen horfði í fyrstu dálítið hissa á skólastjórann, en síðan fékk hann skýringuna: Þegar bekkurinn, sem var 36 dreng- ir 10—11 ára, sá að kennarinn var ekki mættur, oænsru drens:irnir hægjt 02 hljóðlega til stofu sinnar og settust í sæti sín. Það stóð lestur á stunda- skránni. Einn af drengjunum settist nú upp við kennaraborðið, sagði hinum drengjunum hvar þeir ættu að byrja í lestrarbókinni og lét þá síðan lesa, al- veg eins og kennarinn var vanur að gera. Enginn hreyfði mótmælum og tímann leið án nokkurs hávaða eða truflana. Og þegar hringt var úr tíma, létu drengirnir aftur bækur sínar og gengu skipulega út úr stofunni, eins og þegar kennarinn var hjá þeim. Og þegar hér var komið sögu minni, var það sem Jótinn kallaði til mín og sagði: „Þetta er lygi.“ Auðvitað var þetta ekki lygi. Ég vissi, að ég gat treyst á herra Madsen. Sagan vakti athygli meðal kennaranna og nokkra undrun. Ég gat raunar sagt margar fleiri sög- ur svipaðar úr bekkjum herra Mad- sens. Ég talaði einu sinni við herra Mad- sen um þetta: „Mig furðar á því, að þú skulir geta skilið bekki þína þann- ig eftir forsjárlausa, án þess að út af beri,“ sagði ég. „Því að oftast vill það fara svo, að þegar kötturinn er úti, leika mýsnar sér á borðinu. Hvernig fer þú að þessu?“ „Æ, ég geri ekki nokkurn skapaðan hlut. Ég leik sannarlega ekki hlutverk neins uppeldisfræðings, en er bara blátt áfram venjulegur maður. En ég lít líka á börnin og kem fram við þau eins og venjulegt fólk. Ég get sagt þér það, að ég geri aldrei upp á milli barnanna og reyni alltaf að sýna þeim réttlæti. Ég held að börnin skilji það. Dag nokkurn sendi ég 8 ára snáða heim til mín til að reka smáerindi. Þá spurði ráðskonan: „Geðjast þér vel að herra Madsen?“ „Já, mér líkar vel við hann.“ „Er hann ekki nokkuð strangur? Getur það ekki komið fyrir, að hann gefi ykkur löðrung?“ „Ju-ú. En það er þá alltaf vegna þess, að við höfum átt hann skilið," sagði snáðinn. Hann sagði þetta af sannfæringu, og ég held að óhlutdrægni og réttlæti sé ómissandi í starfi kennarans með börnunum." Mér hefur alltaf þótt sem ég stæði í þakkarskuld við vin minn herra Mad- sen. K. J. Möller.

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.