Heimili og skóli - 01.12.1956, Blaðsíða 25

Heimili og skóli - 01.12.1956, Blaðsíða 25
HEIMILI OG SKÓLI 133 1. Ámi Guðmundsson við íþróttakennara- skóla íslands. 2. Guðbrandur Magnússon við Gagnfræða- skóla Siglufjarðar þetta skólaár, meðan Jóhann Jóhannsson er í orlofi. 3. Ragnar Georgsson við nýjan gagnfræða- skóla í Bústaðahverfi í Reykjavík. 4. Olafur H. Kristjánsson við Héraðsskól- ann að Reykjum í Hrútafirði. 5. Olafur Þ. Kristjánsson, sem skipaður hefur verið skólastjóri við Gagnfræða- skólann í Flensborg, Hafnarfirði, í stað Benedikts Tómassonar. Nánara yfirlit um stöðuveitingar verður hægt að gera síðar í mánuðinum. Væntan- lega verður þá búið að setja menn í stöð- ur þær, sem enn eru óveittar. V. Ný reglugerð. Hinn 13 .júlí s.l. var sett ný reglugerð um rétt skóla til kennara í hlutfalli við nemendafjölda. í sömu reglugerð er fyrir- skipuð framkvæmd á því að fækka kennslustundum fastra kennara við barna-, gagnfræðastigs- og húsmæðra- skóla þegar þeir verða 55 ára og svo aftur við 60 ár. Áður var þetta heimild og mið- uð við 60 og 65 ár. Þessi reglugerð hefur það í för með sér, að ráða þarf í ár 15 nýja kennara að barnaskólunum til viðbótar við þá sem fyrir eru. Að gefnu tilefni skal þess getið, að þetta ákvæði er sett til þess að létta starfi af kennurunum. Nýir skólar. Tveim farskólum í Mosvalla- og Breið- dalsskólahverfmn var breytt í heimavist- arskóla á síðasta skólaári. Árni Stefánsson er skólastjóri í Breiðdalnum, en óveitt er skólastjórastaðan í Mosvallaskólahverfi, að Holti í Önundarfirði. Guðm. Ingi Kristjánsson, rithöfimdur, gegndi stöð- unni s.l. skólaár, þar sem enginn kennari fékkst, sem hefur kennarapróf. Búizt er við, að nýr skóli verði stofnað- ur að Kársnesi í Kópavogskaupstað, og nýr gagnfræðaskóli tekur til starfa í Reykjavík á þessu hausti. BÆKUR Barnablaðið Æskan hefur um langt skeið gefið út ýmsar úrvals barnabækur, og enn hefur það sent frá sér 6 nýjar og vandaðar bækur, bæði eftir innlenda og erlenda höfunda. Heimili og skóla hafa borizt eftirtaldar barna- og unglingabæk- ur frá Æskunni: Vala og Dóra eftir Ragnheiði Jónsdótt- ur. Það þarf ekki að kynna Ragnheiði Jónsdóttur fyrir íslenzkum börnum og unglingum, því að hún er nú orðin stór- virkur barnabókahöfundur. Þessi bók er framhald af Völu, sem hlaut miklar vin- sældir, eins og aðrar bækur Ragnheiðar, en efnið verður annars ekki rakið hér. — Ragnheiði tekst jafnan að gera bækur sín- ar lifandi og skemmtilegar. Vormenn íslands eftir Óskar Aðalstein. Óskar er heldur enginn nýliði á þessu sviði. Hann hefur skrifað þrjár bækur fyr- ir börn og unglinga, sem fengið hafa ágæta dóma. Þessi saga er í aðalatriðum saga þriggja drengja. Þetta eru tápmiklir piltar, sem lenda í ýmsum ævitýrum. — Margt fleira fólk kemur þama við sögu, gott fólk, sem margt má af læra. Þetta er góð drengjabók. Góðir gestir eftir Margrétu Jónsdóttur. Þennan höfund þarf heldur ekki að kynna, því að þetta er 12. bók hennar. Og allar þessar bækur hafa flogið út. Þetta er safn af smásögum og fallegum barnaljóðum, mjög eiguleg bók með allmörgum mynd- um. Þessi bók verður vafalaust mjög valin til jólagjafa. Snorri eftir Jennu og Hreiðar, kennara á Akureyri. — Hér er heldur ekki um óþekkta höfunda að ræða, því að þetta er einnig 12. bók þeirra hjóna. Þeim er sér- staklega sýnt um að skrifa fyrir yngstu lesendurna, enda eru þau bæði smábarna- kennarar. Allar bækur þeirra hafa selzt upp á skömmum tíma, og eru það góð meðmæli með bókunum. Nokkrar myndir eru í bókinni. Ég mæli hið bezta með öllum þessum bókum. — H. J. M.

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.