Heimili og skóli - 01.02.1959, Blaðsíða 27

Heimili og skóli - 01.02.1959, Blaðsíða 27
HEIMILI OG SKÓLI 21 deildir eftir greind, en ekki eftir kunn- áttu, sem er yfirleitt lítil, eins og að líkum lætur. Það verður að forðast að setja vel eða miðlungi gefin börn í deildir með vangefnum börnum. Van- gefin börn eru mjög leiðitöm. í slíku umhverfi verða vanræktu börnin leið- togar. Það verkar neikvætt á þau og deildina í heild. Slíkt má náttúrulega ekki koma fyrir. Víða er sá háttur hafð- ur á, að vanræktu börnin eru sett í deildir með meðalgreindum börnum. Vangefin og vanrækt börn verða að vera í deildum með meðalgreindum nemendum. Þetta fyrirkomulag gefst oft vel. Ef kennarinn þekkir allar að- stæður og tekur á misbrestum þessara barna með skilningi, lyftir góður bekkjarandi og gott bekkjarsamfélag þeim upp á við, livað siðferði snertir. Það hefur alltaf mest að segja, hvernig tekst til með þá kennslu og það upp- eldi, sem skólinn veitir, hvernig kenn- aramir eru fallnir til að kenna þessum bömum. Sú skoðun hefur stungið upp kollinum hér á landi, hjá foreldrum og jafnvel einnig hjá kennurum, að vangefin börn og óduglegir kennarar væru förunautar gegn um skólastarfið. Ef til vill er einhver flugufótur fyrir þessu, en sé svo, stafar slíkt fyrirkomu- lag af misskilningi eða vanþekkingu á vandamálum þeirra barna, sem erfið- legast sækist skólanámið. Ég hneigist til þeiivar skoðunar, að hverjum kenn- ara, sem trúað er fyrir hóp vangefinna eða afbrigðilegra barna, sé sýndur mik- ill trúnaður. Próf. Heinrich Hansel- mann segir í bók sinni Sorgenkinder: „Hinir óduglegu kennarar, sem ekki hafa reynst vel við kennslu „normal" barna, eru ekki nógu góðir handa af- brigðilegum bömum. Aðeins beztu kennararnir eru nógu góðir til að kenna þeim.“ Sá skilningur ryður sér svo til rúms í Sviss, að þeir kennarar, sem kenna afbrigðilegum börnum þar, fá mun hærri laun en aðrir kennarar. Þetta fyrirkomulag er haft til þess, að frekar sé hægt að velja úr þeim hópi, sem til þessara starfa býðst. í þessu felst einnig viðurkenning á því, að þetta sé vandameira og oft erfiðara starf en venjuleg kennsla. Mörgum virðist álitamál, hvort af- brigðileg börn eiga að stunda nám í sérdeildum í barnaskóla viðkomandi skólahverfis eða setja eigi á stofn sér- skóla fyrir þau. Börn, sem hafa GV 70 og þar yfir, eiga að stunda nám í skóla viðkomandi skólahverfis, nema sér- stakar uppeldisaðstæður leyfi slíkt ekki. Flest þessara barna myndu finna til þess um of, ef farið væri öðruvísi með þau en venjuleg (normal) börn. Sem fullorðið fólk verða þessi börn að standa á eigin fótum og stunda vinnu á meðal hinna betur gefnu. Þess vegna er þeim hollt að umgangast þá strax í bernsku. Vegalengdir hafa einnig sitt að segja í þessu sambandi, og er óþarfi að skýra það nánar. Sumir telja, að það dragi úr árangri í kennslu og uppeldi þessara barna, að hóparnir, sem hjálpa þarf, eru smáir og dreifðir. í þessu felst dálítill sann- leikur, en séu þessi mál undir einni stjórn, verður árangurinn sízt minni, þótt hóparnir séu dreifðir. Börn, sem bera með sér vanþroska og greindarleysi, þ. e. þau börn, sem liafa GV milli 70 og 50, ættu að stunda nám í sérskólum eða stofnunum. Hin annarlega framkoma þessara barna veldur því, að önnur börn gera oft að- súg að þeim og spila með þau á margan hátt. Það hefur slæm áhrif á þau börn, sem fyrir aðkastinu verða, en þaðjief- ekki síður slæm áhrif á hugarþel barn- anna, sem af óvitaskap draga dár af

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.