Heimili og skóli - 01.02.1959, Side 16

Heimili og skóli - 01.02.1959, Side 16
10 HEIMILI OG SKÓLI Sambandið við aðra menn. Jafnframt er lagt kapp á að afla sér álits meðal annarra barna. En fjögra ára barnið þarf þó engu síður á viður- kenningu hinna fullorðnu að halda. Og þegar á það þykir skorta, hrósa þau sér sjálf og gorta mikið, bæði af afreks- verkum sínum og af öllu því, sem þau geta, og einnig af öllu því, sem „pabbi minn“, og „mamma mín“ geta gert. Vináttan við nágrannana er nokkuð tilviljanakennd og stendur oft skamma hríð. Börnunum sinnast oft, stjaka við hvort öðru, skammast, og hlaupa heim til mömmu og klaga. Fjögra ára börn eru mjög kvik í hreyfingum og fasi. Þau verða oft fyrir árekstrum við umhverfið, en leysa þá erfiðleika auðveldlegar en áður. Þó þarfnast þau mjög halds og trausts, pabba og mömmu, eða einhverra, er geta komið í þeirra stað og veitt þeim öryggi, hjálp og skjól, en sem jafnframt skilja þau og tilraunir þeirra til að leggja undir sig heiminn, skilja aðra menn og sjálf sig. Ern fimm ára börnin skynsöm? „Fullorðinn maður fimm ára“, heit- ir barnabók eftir Anka Borch. Bókar- heitið er gott, því að í samanburði við yngri börn, eru fimm ára börn mjög margfróð og reynd. Þau hafa oft kom- ist í hann krappann og sigrast á mörg- um erfiðleikum. Það er eins og þau komi út úr dimmum jarðgöngum í bjart sólskinið. En þó eru enn mörg sker á leiðinni, og fimm ára aldurinn hefur bæði sínar dimmu og björtu hliðar. Með vaxandi aldri verður mikill munur á börnum, þau mótast hvert og eitt af því umhverfi, sem þau lifa í og þeirri viðburðarás, sem verður á vegi þeirra. Þau fá hvert og eitt sín sérstöku vandamál við að glíma. En jafnframt eiga þau mörg sameiginleg vandamál við sameiginleg menningarskilyrði, svo að samfélagið setur einnig sitt sameig- inlega svipmót á þau, auk þess sem alltaf er meira og minna sameiginlegt með börnum á sama aldri. Valdið yfir vöðvunum. Fimm ára börn hafa lagt af og eru orðín grennri og nettari en áður. Þau eiga mjög auðvelt með alls konar hreyfingar, en þó hafa hinir fíngerðari vöðvar ekki náð þeirri nákvæmni og leikni, sem þeir ná síðar. Fimm ára börn geta t. d. ekki skrifað. — Ekki saumað nema með mjög grófri nál með stórum sporum og ekki geta þau prjón- að. Hreyfingar augnanna eru yfirleitt ekki svo öruggar, að þau geti lært að lesa. Aftur eru börnin á þessum aldri dugleg að klippa og líma.móta hluti úr leir — teikna með grófum litum — og þau kunna að fara með ýmis áhöld t. d. hrífu og reku. Þau geta farið í knatt- leiki, byggt úr kubbum, ekið hjólbör- um, staðið á skíðum o. fl. Málið er enn einfalt og viðhafnar- laust. Enda hugsa þau og tala einkum um einföld viðfangsefni. Þau verða að taka ímyndunaraflið í þjónustu sína þegar þau taka að brjóta heilann um ýmis orsakasambönd, en við slíkt glíma þau oft. Þau hugsa og spyrja, og draga sínar ályktanir af, sem eru kannski ekki alltaf rökréttar: „Gestirnir máttu borða allar kök-

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.