Heimili og skóli - 01.02.1960, Page 9

Heimili og skóli - 01.02.1960, Page 9
HEIMILI OG SKÓLI 3 JÓNAS PÁLSSON, sálfræðingur: Sérkennsla í lestri Jónas Pálsson er fæddur að Beingarði í Rípurhreppi í Skagafirði. Hann varð stú- dent frá Menntaskólanum á Akureyri 1947. Háskólanám í Edinborg frá 1949— 1952. Aðalgreinar sálarfræði og mannkyns- saga. Starfar nú sem skólasálfræðingur við skólana í Kópavogi. Jónas hefur lofað að skrifa greinaflokk í Heimili og skóla þetta ár og birtist hér fyrsta greinin. — Ritstj. Börnum sækist mjög misjafnlega lestrarnám, svo sem alkunna er. Raun- ar er því einnig svo farið með allt nám, en lestur hefur þó nokkra sér- stöðu, þó ekki væri vegna annars en þess, að sæmileg lestrarkunnátta er frumskilyrði góðs árangurs í öðrum námsgreinum. , í þessum pistli er ekki rúm til að ræða lestrarnámið almennt né sam- band greindarþroska og lestrarleikni, en ef til vill verður það gert síðar. Hér verður aðeins drepið á sérkennslu barna, sem eiga við lestrarörðugleika að etja. Á Norðurlöndum hafa einkum tvær leiðir verið farnar til hjálpar börrtum með lestrarörðugleika. Myndaðir hafa verið lestrarbekkir og komið upp svonefndum lestrar-„klin- ikk“. í lestrarbekkina eru valin börn með lestrarörðugleika, en þó þannig að þau hafi um það bil meðalgreind- arþroska eða betri. Sérstök áherzla er lögð á lestrarnámið og reynt að haga kennslu í öðrum greinum þannig, að léleg lestrarkunnátta dragi sem Náskylt þessu umræðuefni er við- horfið til siðgæðis og trúar: Þetta tvennt er síður en svo nokkur and- stæða við hina miklu þekkingarleit nútímans. Það þarf að minnsta kosti ekki svo að vera. En margt bendir þó til, að þegar annað er í hávegum liaft, sé hitt vanrækt, og það er engin til- viljun hvað óskaplega lítið l'er fyrir umræðum um siðgæði og trú í út- varpi, blöðum, skólum og manna á meðal. Við hristum að vísu höfuðin er við heyrum talað um einhver fjár- svikin, innbrotin, drykkjulætin og öll slysin sem stafa af drykkjuskap, en við reynum sjaldnast að gera okkur grein fyrir, hvað á bak við allt þetta siðleysi liggur. Er það ekki einhver veila í uppeldi þjóðarinnar — kannski væri réttara að segja þjóðanna, því að við eruin ekki lengur einangraður hópur langt úti í hafi. Væri ekki ástæða til að skipa einhverja nefnd viturra og háþroskaðra rnanna til að einbeita vitsmunum sínum að kjarnorku hug- arfarsins og í hvaða átt væri æskileg- ast að beina henni? Maðurinn er kom- inn í skugga vélarinnar . Gleðilegt ár. Hannes J. Magnússon.

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.