Heimili og skóli - 01.02.1960, Blaðsíða 26

Heimili og skóli - 01.02.1960, Blaðsíða 26
20 HEIMILI OG SKÓLI Ég hef unnið með Magnúsi í 30 ár. Lengst sem samkennari hans, en síðar sem skólastjóri. Og ég hef aldrei vitað 'til þess að nokkru sinni hafið hlaupið hin minnsta snurða á þráðinn í sam- búð hans við nemendur sína. Dreng- irnir hans, sem eru orðnir nokkuð margir, hafa allir virt hann og ég veit ekki annað en þeim hafi öllum þótt vænt um hann. Þetta er góð einkunn að leiðarlokum. Ég hef ekki þekkt meiri þegnskaparmann en Magnús vin rninn. Þegar eitthvað þurfti að gera, einhverju að kippa í lag, sem af- laga fór, rakst maður ætíð á útrétta hönd Magnúsar. Og aldrei hittir mað- ur Magnús öðruvísi en brosandi. Enda hefur hann verið hamingjumaður. Hann átti ágæta konu, ’ Guðrúnu Bjarnadóttur, ættaða úr Húnaþingi. Hjónaband þeirra var óvenjulega far- sælt. Þau eignuðust 6 börn. Fimm pilta og eina stúlku. Barnalán þeirra hjóna hefur verið mikið. Öll þessi btirn hafa menntast og mannast og eru hið ágætasta fólk. Magnús átti við nokkra fátækt að búa á meðan börnin voru að komast upp, en heimilið var þó alltaf fullt af lífsgleði. Hið svokallaða barnalán er sannarlega engum tilviljunum háð. Það má segja, að Magnús beri ell- ina vel. Raunar finnst mér hann alls ekki vera gamall. Hann er varla rosk- inn. Hann missti Guðrúnu konu sína fyrir nokkrum árum, en er nú kvænt- ur Margréti Jónsdóttur skáldkonu. Magnús er nú víst dæmdur úr leik næsta haust eftir 36 ára farsælt starf, sem fastur kennari við Barnaskóla Akureyrar, og hefur enginn kennari starfað þar lengur. Barnaskóla Akur- eyrar á Magnúsi Péturssyni margt að þakka, og við samstarfsmenn hans einnio;. Maa,nús verður vafalaust gam- all maður að árum, en ég held að hann verði alltaf ungur í anda og fasi. Fyrir mína hönd, samstarfsmanna þinna, en síðast en ekki sízt fyrir hönd Barnaskóla Akureyrar, þakka ég þér öll þessi mörgu og góðu ár. í>ú áttir þinn þátt í að gera þau svo góð. Þetta verður að nægja þangað til þú verður áttræður. H. J. M. Frá útgefendum Heimili og skóli hefur vafalaust verið eitt ódýrasta tímarit á Islandi, en nú er óhjákvæmilegt að hækka það upp í 35 krónur. Þetta eru kaupendur og útsölumenn beðnir að athuga. Það má enginn vita það.

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.